Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 256. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 531  —  256. mál.




Svar



sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Birkis J. Jónssonar um störf hjá ráðuneytinu.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hversu mikið hefur störfum hjá ráðuneytinu og undirstofnunum þess fjölgað eða fækkað það sem af er þessu ári á höfuðborgarsvæðinu annars vegar og utan þess hins vegar?
     2.      Hversu mikið er áætlað að störfum hjá ráðuneytinu og undirstofnunum þess fjölgi utan höfuðborgarsvæðisins á næsta ári?


    Á árinu 2007 fækkaði störfum hjá ráðuneytinu og undirstofnunum þess um 12 á höfuðborgarsvæðinu, en utan höfuðborgarsvæðisins fjölgaði störfum um 5.
    Erfitt er að segja til um árið 2008 þar sem vinna við sameiningu sjávarútvegsráðuneytisins og landbúnaðarráðuneytisins stendur yfir, þ.m.t. endurskipulagning á fyrirkomulagi stjórnsýslu matvælamála.