Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 329. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 537  —  329. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um undirbúning að þjónustumiðstöð við olíuleit á Drekasvæði.

Flm.: Kristján Þór Júlíusson, Steingrímur J. Sigfússon, Arnbjörg Sveinsdóttir,


Birkir J. Jónsson, Einar Már Sigurðarson, Þuríður Backman,


Ólöf Nordal, Höskuldur Þórhallsson.



    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að aðstoða sveitarfélögin Langanesbyggð og Vopnafjarðarhrepp við að undirbúa og kanna þörf á starfrækslu þjónustumiðstöðvar sem gæti annast alla helstu þjónustu hérlendis við skip sem leita olíu á Drekasvæði.

Greinargerð.


    Í undirbúningi er hjá iðnaðarráðuneytinu að bjóða út olíuleit á Drekasvæði haustið 2008 og gera má ráð fyrir að olíuleit hefjist þar árið 2009. Sveitarfélögin Langanesbyggð og Vopnafjarðarhreppur hafa ákveðið að stofna sameiginlegt fyrirtæki sem á að kanna hvort innanverður Bakkaflói henti undir þjónustumiðstöð fyrir áformaða olíuleit á Drekasvæði.
    Sveitarfélögin áforma að láta kanna þann möguleika að gera sérstaka þjónustuhöfn í þessu skyni þar sem verði nauðsynlegur búnaður til að annast alla þá þjónustu sem veita þarf skipum sem annast olíuleit og eins skipum sem þjóna leitarskipunum. Leiði rannsóknir til þeirrar niðurstöðu að olía verði unnin á Drekasvæðinu mun slík höfn einnig nýtast til flutninga á gasi frá landinu þar sem trúlegast yrði lögð gaslögn frá vinnslusvæðinu í land við Bakkaflóa og þar reist gasþjöppunarstöð (vegalengdin í land sú stysta sem völ er á).
    Einnig er áformað að sveitarfélögin taki að sér að hafa á svæðinu allan þann neyðar- og björgunarbúnað sem til þarf svo að unnt verði að bregðast við í neyðartilvikum í samstarfi við björgunarsveitir og Landhelgisgæslu.
    Gera þarf annars vegar botn-/þrívíddar- og öldumælingar í Bakkaflóa til að hægt verði að meta hvort staðsetningin uppfylli kröfur sem gerðar verða til slíkrar hafnar og hins vegar þarfagreiningu þar sem farið verði yfir þá þætti sem þjónustumiðstöð eins og sú sem um ræðir þarfnast, svo sem samgöngur, þjónustu hvers konar, landnýtingu o.fl.
    Umrætt svæði hefur átt undir högg að sækja í atvinnulegu tilliti og íbúum þar fækkað jafnt og þétt á undanförnum árum. Þetta skýrist aðallega af því að mikillar einhæfni gætir þar í atvinnulífi og sveiflur í sjávarútvegi og landbúnaði hafa haft afdrifaríkar afleiðingar. Því er mikils um vert að hugmyndir er kunna að geta snúið þeirri þróun við verði skoðaðar til hlítar.
    Leiði sú undirbúningsvinna sem fyrirhuguð er til þess að umrædd þjónustumiðstöð rísi við Bakkaflóa er líklegt að það verði mikil lyftistöng fyrir atvinnulíf á öllu Norðausturlandi, ekki aðeins í sveitarfélögunum tveimur sem hafa frumkvæði að því að farið verði í þessa vinnu.