Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 562, 135. löggjafarþing 204. mál: innflutningur dýra (ákvörðunarvald til yfirdýralæknis).
Lög nr. 141 19. desember 2007.
Yfirdýralæknir getur vikið frá því banni sem um getur í 1. mgr. 2. gr. og leyft innflutning á gæludýrum og erfðaefni þeirra sem ekki teljast til nýrra dýrategunda eða erlendra stofna tegunda sem hér eru fyrir, sbr. 5. gr., enda sé fylgt fyrirmælum sem felast í lögum þessum og reglugerðum er settar eru samkvæmt þeim.
Meta skal áhættu af innflutningi og er heimilt að krefja innflytjanda um upplýsingar um heilbrigði gæludýrs, þ.m.t. heilbrigðis- og upprunavottorð, sem staðfesta nauðsynlega bólusetningu, rannsóknir og meðhöndlun gæludýrs eða erfðaefnis fyrir innflutning.
Heimilt er að krefjast skapgerðarmats á hundum sem sótt er um innflutningsleyfi fyrir, einnig er heimilt að krefjast skapgerðarmats á hundum sem sótt er um leyfi til að flytja inn erfðaefni úr. Ekki skal veita undanþágu til innflutnings á hundum, blendingum af úlfum og hundum, eða öðrum gæludýrum sem hætta getur stafað af.
Innflutt erfðaefni svína má ekki flytja úr einangrunarstöð. Svín sem vaxið hafa af innfluttu erfðaefni í einangrunarstöð má hins vegar flytja þaðan að fengnu leyfi yfirdýralæknis og uppfylltum skilyrðum 1. mgr.
Þingskjal 562, 135. löggjafarþing 204. mál: innflutningur dýra (ákvörðunarvald til yfirdýralæknis).
Lög nr. 141 19. desember 2007.
Lög um breytingu á lögum um innflutning dýra, nr. 54/1990, með síðari breytingum.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. laganna:- Orðskýringin Búfé verður svohljóðandi: Alifuglar, geitfé, hross, kanínur, loðdýr, nautgripir, sauðfé og svín. Rísi ágreiningur um hvað skuli falla undir hugtakið búfé sker landbúnaðarráðherra úr.
- Við orðskýringuna Einangrunarstöð bætist: auk svína og erfðaefnis þeirra.
- Ný orðskýring bætist við, í réttri stafrófsröð, svohljóðandi: Gæludýr: Dýr af eftirgreindum tegundum og flokkum: Hundar, kettir, kanínur, skrautfiskar, vatnadýr, nagdýr og búrfuglar.
2. gr.
Á eftir orðunum „dýra og erfðaefnis“ í 4. mgr. 2. gr. laganna kemur: sbr. þó 4. gr. a.3. gr.
Á eftir 4. gr. laganna bætist við ný grein, 4. gr. a, svohljóðandi:Yfirdýralæknir getur vikið frá því banni sem um getur í 1. mgr. 2. gr. og leyft innflutning á gæludýrum og erfðaefni þeirra sem ekki teljast til nýrra dýrategunda eða erlendra stofna tegunda sem hér eru fyrir, sbr. 5. gr., enda sé fylgt fyrirmælum sem felast í lögum þessum og reglugerðum er settar eru samkvæmt þeim.
Meta skal áhættu af innflutningi og er heimilt að krefja innflytjanda um upplýsingar um heilbrigði gæludýrs, þ.m.t. heilbrigðis- og upprunavottorð, sem staðfesta nauðsynlega bólusetningu, rannsóknir og meðhöndlun gæludýrs eða erfðaefnis fyrir innflutning.
Heimilt er að krefjast skapgerðarmats á hundum sem sótt er um innflutningsleyfi fyrir, einnig er heimilt að krefjast skapgerðarmats á hundum sem sótt er um leyfi til að flytja inn erfðaefni úr. Ekki skal veita undanþágu til innflutnings á hundum, blendingum af úlfum og hundum, eða öðrum gæludýrum sem hætta getur stafað af.
4. gr.
Við 13. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Innflutt erfðaefni svína má ekki flytja úr einangrunarstöð. Svín sem vaxið hafa af innfluttu erfðaefni í einangrunarstöð má hins vegar flytja þaðan að fengnu leyfi yfirdýralæknis og uppfylltum skilyrðum 1. mgr.
5. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2008.Samþykkt á Alþingi 14. desember 2007.