Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 262. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 564  —  262. mál.




Svar



samgönguráðherra við fyrirspurn Birkis J. Jónssonar um störf hjá ráðuneytinu.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hversu mikið hefur störfum hjá ráðuneytinu og undirstofnunum þess fjölgað eða fækkað það sem af er þessu ári á höfuðborgarsvæðinu annars vegar og utan þess hins vegar?
     2.      Hversu mikið er áætlað að störfum hjá ráðuneytinu og undirstofnunum þess fjölgi utan höfuðborgarsvæðisins á næsta ári?

    Starfsmannafjöldi á aðalskrifstofu ráðuneytisins í Reykjavík er óbreyttur frá upphafi árs 2007. Aðalskrifstofan hefur ekki starfsemi utan höfuðborgarsvæðisins.
    Starfsmönnum undirstofnana ráðuneytisins fækkaði árið 2007 um þrjá á höfuðborgarsvæðinu en starfsmannafjöldi er óbreyttur utan þess. Árið 2008 er gert ráð fyrir að starfsmönnum undirstofnana ráðuneytisins fjölgi um 6,2 utan höfuðborgarsvæðisins.