Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 336. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 570  —  336. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um uppbyggingu heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu.

Frá Álfheiði Ingadóttur.



    Hvernig hyggst ráðherra bregðast við aukinni þörf fyrir þjónustu hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, bæði á eldri stöðvum og í nýjum hverfum? Liggur fyrir áætlun um uppbyggingu heilsugæslu í þessu umdæmi á næstu árum?