Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 377. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 621  —  377. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um atvinnumál kvenna í Suðurkjördæmi.

Frá Hönnu Birnu Jóhannsdóttur.



     1.      Hefur verið kannað hvernig atvinnumálum kvenna í Suðurkjördæmi er háttað, svo sem hvaða störf þær stunda og í hve miklum mæli?
     2.      Er vitað hvort störfum kvenna í sjávarútvegi, landbúnaði og þjónustu í Suðurkjördæmi hafi fjölgað, þau staðið í stað eða þeim fækkað síðastliðin fimm ár?
     3.      Er vitað hvernig atvinnumál kvenna í Suðurkjördæmi hafa þróast miðað við atvinnu kvenna í öðrum kjördæmum?