Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 390. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 634  —  390. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um öryggi vegasambands við Ísafjörð um Súðavíkurhlíð.

Frá Jóni Bjarnasyni.



     1.      Hvað líður áformum um aukið öryggi vegasambands við Ísafjörð um Súðavíkurhlíð?
     2.      Hefur verið gert áhættumat á núverandi vegi milli Ísafjarðar og Súðavíkur? Ef svo er, hvernig kemur það mat út miðað við tilsvarandi vegarkafla innan og milli byggðarlaga annars staðar?
     3.      Kemur til greina að gerð jarðganga um Súðavíkurhlíð verði sérstakt flýtiverkefni með tilliti til öryggis?