Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 393. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 637  —  393. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 60/1981, um raforkuver, með síðari breytingum.

Flm.: Jón Bjarnason, Álfheiður Ingadóttir, Kolbrún Halldórsdóttir,


Þuríður Backman, Ögmundur Jónasson.


1. gr.

    2. mgr. 1. gr. laganna fellur brott.


2. gr.

    Orðin „virkjun Héraðsvatna við Villinganes (Villinganesvirkjun) með allt að 40 MW afli“ í 3. mgr. 2. gr. laganna falla brott.


3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Frumvarp þetta er lagt fram til að fella brott heimild iðnaðarráðherra til að leyfa Rafmagnsveitum ríkisins í félagi með aðilum í Skagafirði að reisa og reka virkjun Héraðsvatna við Villinganes í Skagafirði (Villinganesvirkjun).

Villinganesvirkjun.
    Með lögum nr. 48/1999 var iðnaðarráðherra m.a. heimilað að leyfa Rafmagnsveitum ríkisins (Rarik) gerð Villinganesvirkjunar.
    Virkjun við Villinganes hefur lengi verið til skoðunar eða allt frá því að fyrst var farið að skoða virkjun við Blöndu. Þegar ákveðið var að ráðast í byggingu Blönduvirkjunar stöðvaðist hins vegar frekari undirbúningur Villinganesvirkjunar. Árið 1999 færðist heimildin til að virkja Héraðsvötn frá Landsvirkjun til Rariks. Stuttu síðar stofnaði Rarik í samvinnu við heimamenn í Skagafirði orkufyrirtækið Héraðsvötn með það fyrir augum að hefja undirbúning að byggingu Villinganesvirkjunar.
    Fyrirhugað er að stífla Héraðsvötn milli bæjanna Villinganess og Tyrfingsstaða, þ.e. um 2 km neðan við ármót Austari-Jökulsár og Vestari-Jökulsár. Áhrifasvæði virkjunarinnar er meðfram ánum ofan ármótanna og þaðan með Héraðsvötnum til sjávar, alls um 55 km leið. Áhrifasvæðið liggur um bæði sveitarfélögin í Skagafjarðarsýslu, Akrahrepp og Sveitarfélagið Skagafjörð.
    Á árunum 1999–2001 var unnin skýrsla um mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar Villinganesvirkjunar og var það staðfest af Skipulagsstofnun 5. júlí 2002 með nokkrum athugasemdum. Skýrslan var harðlega gagnrýnd og m.a. talið að hún byggðist á takmörkuðum og úreltum gögnum, hvorki væri metinn inn fórnarkostnaður óspilltrar náttúru né mikilvægi gljúfranna og jökulsánna fyrir fljótasiglingar og aðra ferðaþjónustu í Skagafirði, sem byggist á sögu, menningu og óspilltri náttúru. Það var og gagnrýnt að ekki voru rannsökuð áhrif hugsanlegrar stíflunar jökulsánna á lífríki og náttúrufar á vatnasvæði Héraðsvatna neðan stíflustæðisins og á grunnsævi í Skagafirði.
    Óumdeilt er að umhverfisáhrif af virkjun Héraðsvatna við Villinganes yrðu mikil. Gljúfur Héraðsvatna færu að hluta til undir vatn auk þess sem vatnsborðshækkunar mundi gæta upp eftir gljúfrum Vestari- og Austari-Jökulsár. Þá yrðu áhrif á dýralíf mikil, t.d. fuglalíf og fiska.
    Á undanförnum árum hefur mikil uppbygging á sviði ferðaþjónustu átt sér stað í Skagafirði. Einn liður í þeirri uppbyggingu eru fljótasiglingar sem stundaðar hafa verið á undanförnum árum á jökulsánum báðum. Því hefur verið haldið fram af þeim sem best þekkja til að aðstæður til fljótasiglinga í Skagafirði séu á meðal þeirra bestu í heiminum. Ljóst er að virkjun Héraðsvatna við Villinganes hefði mikil áhrif á þessar siglingar og jafnvel mundu þær leggjast alveg af.

Lokaorð.
    Flutningsmenn telja m.a. á framangreindum forsendum og ekki síst vegna þess hversu einstakt landsvæði hér er á ferðinni að rétt sé að hætta við öll áform um virkjunar- og orkuframkvæmdir þar.



Fylgiskjal I.


Náttúruverndarsamtök Íslands:

Áskorun frá Náttúruverndarsamtökum Íslands.

(5. október 2006.)

    Náttúruverndarsamtök Íslands hafa sent sveitarstjórn Skagafjarðar áskorun þar sem sveitarstjórn er hvött til að fresta áformum um að setja Villinganes- (og þar með Skatastaðavirkjun) inn á aðalskipulag. Náttúruverndarsamtökin minna á að mikill meiri hluti Skagfirðinga er andvígur stóriðjuframkvæmdum í Héraði og stuðningur við verndun Héraðsvatna er mikill.

Áskorun til sveitarstjórnar Skagafjarðar.
    Náttúruverndarsamtök Íslands skora á sveitarstjórn Skagafjarðar að fresta áformum um að setja Villinganes- (og þar með Skatastaðavirkjun) inn á aðalskipulag. Náttúruverndarsamtökin minna á að mikill meiri hluti Skagfirðinga er andvígur stóriðjuframkvæmdum í Héraði og stuðningur við verndun Héraðsvatna er mikill. Raunar eru þessi fallvötn dýrmæt auðlind fyrir ferðaþjónustu í Skagafirði.
    Villinganesvirkjun hefur í för með sér mikil og varanleg umhverfisáhrif, orkugeta hennar er bæði lítil og kostnaðarsöm, auk þess sem uppbygging ferðaþjónustu á svæðinu færi forgörðum. Hagkvæmni Villinganesvirkjunar er það lítil að bygging hennar er háð byggingu Skatastaðavirkjunar.
    Ekki liggja fyrir nein áform um virkjun Jökulsár Austari, svokallaða Skatastaðavirkjun. Öðru nær, sveitarstjórnin hefur látið í ljósi vilja sinn til að kanna kosti þess að friðlýsa það svæði. Þann kost ber að skoða ítarlega áður en gengið er frá aðalskipulagi. Ekki er því tímabært að setja Villinganesvirkjun inn á aðalskipulag.
    Náttúruverndarsamtök Íslands minna á að virkjun Héraðsvatna í þágu stóriðju í öðrum landshlutum nýtur ekki stuðnings Skagfirðinga. Engu að síður, landið eitt er eitt orkusölusvæði og verði af framkvæmdum fá heimamenn litlu ráðið um hvert orkan verður seld.



Fylgiskjal II.


Stjórn Náttúruvaktarinnar:

Ályktun frá Náttúruvaktinni

vegna fyrirhugaðra virkjana Héraðsvatna í Skagafirði.

(5. október 2006.)

    Náttúruvaktin leggst eindregið gegn áformum sveitarstjórnar Skagafjarðar að setja virkjunarkosti við Villinganes í Jökulsánum inn á Skipulag.
    Villinganesvirkjun hefur í för með sér umtalsverð óafturkræf umhverfisáhrif og er ekki sjálfbær þar sem að lón hennar mun fyllast af framburði á fáum áratugum. Hagkvæmni og arðsemi virkjunar við Villinganes grundvallast á að farið verði einnig í gerð Skatastaðavirkjunar enda virkjunin sögð hagkvæm sem „fyrsti áfangi virkjunar Héraðsvatna“ í rammaáætlun um orkunýtingu. Með því að setja Villinganesvirkjun inn á aðalskipulag hefur sveitarstjórnin lýst sig fylgjandi framkvæmdinni og fátt því til fyrirstöðu að hefja framkvæmdir.
    Það sætir furðu að sveitarstjórnarmönnum sé svo umhugað um að eyðileggja Jökulsárnar sem hafa á undanförnum árum markað sér sess með bestu flúða- og straumvatnsám Evrópu og skapa sem slíkar Skagafirði mikla sérstöðu í ferða- og afþreyingarþjónustu. Árnar ásamt jaðarstarfsemi skapa á annan tug starfa í héraðinu. Það er því með öllu óskiljanlegt að vilja fórna svo einstakri náttúru og atvinnumöguleikum fyrir það eina starf sem slík virkjun skapar í Skagafirði. Öllum má vera ljóst að verði Héraðsvötnin virkjuð verður sú orka notuð í stóriðju annars staðar.
    Lón Villinganesvirkjunar mundi, auk þess að eyðileggja flúðasiglingar og einstæða náttúruskoðun, kaffæra fornminjar, sérstakar jarðmyndanir, laugar í gljúfurveggjum, einstakar birkihríslur, skemma laxagengd, auk þess að hafa veruleg áhrif á alþjóðlega mikilvæg fuglasvæði. Þá ber að geta þess að þegar framburður ánna hættir berast um láglendar flæður við Héraðsvötnin geta áhrifin orðið umtalsverð þar sem rofmáttur sjávar tekur völdin og ströndin mun færast innar með ófyrirséðum afleiðingum.
    Nýting ánna í núverandi horfi er bæði arðsöm og sjálfbær. Náttúruvaktin hvetur sveitarstjórnarmenn í Skagafirði að skoða málið vel frá öllum hliðum áður en virkjanakostir verða festir á skipulag.









Fylgiskjal III.


Virkjunum í Jökulsánum í Skagafirði hafnað.

(Opinn fundur á Sauðárkróki, 25. september 2006.)

    Opinn fundur um verndun Jökulsánna og náttúru þeirra, haldinn á Sauðárkróki 25. september 2006, mótmælir harðlega áformum meiri hluta sveitarstjórnar Skagafjarðar um að gera ráð fyrir Villinganesvirkjun á aðalskipulagi. Fundurinn skorar á sveitarfélögin í Skagafirði að koma í veg fyrir að Héraðsvötnunum og Jökulsánum í Skagafirði, sem svo mjög móta ásýnd og ímynd héraðsins, verði fórnað. Fundurinn leggst alfarið gegn öllum hugmyndum um virkjanir í Jökulsánum í Skagafirði og því að gert sé ráð fyrir slíkum framkvæmdum á aðalskipulagi Skagafjarðar.



Fylgiskjal IV.


Ályktun aðalfundar Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Skagafirði.

(29. janúar 2006.)

    Aðalfundur VG í Sveitarfélaginu Skagafirði haldinn 29. janúar 2006 fagnar þeirri fjölbreyttu uppbyggingu sem átt hefur sér stað í Skagafirði síðustu árin og áformum um miðstöð hátækniiðnaðar í héraðinu. Hins vegar hafnar fundurinn hugmyndum um álver við Kolkuós og stórvirkjanir í Skagafirði í tengslum við álbræðslu á Norðurlandi sem eru andstæðar hagsmunum Skagfirðinga. Atvinnutækifærin felast í fjölbreytni og þekkingariðnaði, en ekki einhæfum álbræðslum sem skaða möguleika annarra atvinnugreina ásamt því að ganga á náttúru landsins og aðra atvinnukosti til framtíðar.
    Enn fremur fagnar fundurinn ákvörðun um að þyrma Þjórsárverum og hvetur til þess að einnig verði komið í veg fyrir að Héraðsvötnunum og Jökulsánum í Skagafirði, sem svo mjög móta ásýnd og ímynd héraðsins, verði fórnað. Aðalfundur VG í Skagafirði leggst alfarið gegn öllum hugmyndum um virkjanir í Jökulsánum í Skagafirði og því að gert sé ráð fyrir slíkum framkvæmdum á aðalskipulagi Skagafjarðar.



Fylgiskjal V.


Ályktun félagsfundar Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Skagafirði.

(8. júní 2005.)

„Meðan Vötnin ólgandi að ósum sínum renna “.
    Héraðsvötnin og Jökulsárnar móta ásýnd og ímynd Skagafjarðar og eru undirstaða hins síkvika lífkerfis héraðsins allt frá jöklum til hafs. Tækifæri framtíðarinnar felast í að nýta þau óspjölluð í tengslum við fjölþætta útivist, veiði, ferðaþjónustu, landbúnað og aðra umhverfisvæna atvinnustarfsemi. Þýðing vatnanna fyrir uppeldi fiskseiða, bæði ferskvatnsfiska og sjávarfiska, er einnig ómetanleg.
    Atvinnutækifærin felast í fjölbreytni og þekkingariðnaði, en ekki einhæfum álbræðslum sem skaða möguleika annarra atvinnugreina eins og skýrt hefur komið í ljós að undanförnu. Félagsfundur VG í Skagafirði leggst því alfarið gegn öllum hugmyndum um virkjanir í Jökulsánum í Skagafirði.



Fylgiskjal VI.


Anna Dóra Antonsdóttir:

Skatastaðavirkjun líka.

(Morgunblaðið, 27. október 2004.)

    Hitti á dögunum ungan Skagfirðing á förnum vegi. Við tókum tal saman um lífið og tilveruna, staðinn, stundina, heimahagana og talið barst óhjákvæmilega að Vötnunum. Hvaða Skagfirðing hittir þú yfirleitt, á heimaslóð eða fjarri heimkynnum, sem ekki talar um Vötnin. Hvernig er veiðin? Er lágt eða hátt í? Eru vötnin komin á, eru þau komin af? Hvernig er liturinn? Syngur hátt í þeim í dag?

Vötnin eru Skagafjörður.
    – En ef þeir fíflast til að stífla, hvað verður þá um Eylendið? sagði ungi maðurinn og fannst hann komast vel að orði. Mér fannst það líka og varð hugsi, ef þeir fíflast til að stífla. Hvað gerist þá?
    Samkvæmt okkar lagabálkum ber að láta fara fram umhverfismat um þýðingu þess að spilla náttúrunni? Við vitum þess nýleg dæmi að einn ráðherra getur umsnúið mati Umhverfisstofnunar sér í hag. Og það er ekki endilega hagur náttúrunnar eða umhverfisins. Ekki endilega.
    En friðun Austara-eylendisins í Skagafirði er á borði umhverfisráðherra. Friðun þýðir væntanlega að ekki er hægt að fara í stórvirkjanir á svæðinu. Ekki er hægt að friða með annarri hendi og spilla með hinni. Friðun merkir ekki takmörkun á eignarrétti, heldur að ekki má lengur eyðileggja, í þessu tilfelli votlendið meðfram Héraðsvötnum og lífríkið sem þar dafnar. Ekki má taka þá áhættu að ósasvæðunum verði stefnt í voða og þar með lífríki sjávar á Skagafirðinum. Friðun er í mínum huga þetta. Það má sem sagt ekki eyðileggja Vötnin.
    Hvers verður minnst frá aldamótum 2000 á Íslandi eftir 50 ár, eða 100 ár? Munu menn velta fyrir sér fjölmiðlafárinu sem skall á sumarið 2004? Nei, varla nema þá nokkrir rykfallnir sagnfræðingar. En verður munað eftir Kárahnjúkum og Skatastöðum í Skagafirði? Já, því að þar verða bautasteinar um skammsýni og heimsku mannanna. Ef ekki verður af heimskunni látið.
    Er svo heimskulegt að vilja græða, spyr einhver. Það eru meginrök ráðamanna að hagnaðurinn sé svo mikill, Ísland verði svo ríkt. Jæja, fyrir þremur árum setti undirrituð fram tölur frá árinu 1999, fengnar úr Mbl.-grein eftir Magnús Thoroddsen. Þær tölur hefur enginn véfengt og verða þær dregnar hér fram að nýju. Stóriðjan notaði 63,5% raforkuframleiðslunnar þá og greiddi 0,90 kr. á kílóvattstund en aðrir notuðu 35,5% heildarorkunnar og greiddu 5,15 kr. fyrir kílóvattstundina (Mbl. 24. júlí 2001). Enda er það svo að fáir sjá þennan mikla gróða sem sífellt er talað um. Hefur Landsvirkjun til dæmis greitt niður erlendar skuldir okkar eins og Norðmenn létu olíuna gera? Nei, þvert á móti, Landsvirkjun safnar erlendum skuldum sem ákafast. Landsvirkjun er sem sagt ekki rekin með hagnaði sem skilar sér í ríkiskassann, okkur skattgreiðendum til góða. Ekki einu sinni eldri virkjanirnar sem ættu að vera afskrifaðar og mala gull, afrakstur þeirra fer í hítina. Í Feyki 28. apríl sl. er vitnað í orð Þórólfs Gíslasonar, kaupfélagsstjóra á Sauðárkróki, þar sem hann ræðir virkjanir við Villinganes og Skatastaði og segir m.a.: „Auk þess sem virkjun myndi lækka orkukostnað til almennings í landinu.“ Hér með er lýst eftir þeim sem séð hefur lækkandi orkureikninga í kjölfar stórvirkjana.
    Stórvirkjun á borð við Skatastaðavirkjun kallar að sjálfsögðu á álver. Það er svo sjálfsagt að ráðamönnum finnst varla lengur taka því að segja þetta upphátt. Og iðnaðarráðherra talar við Skagfirðinga eins og lítil börn: – Ykkur var nær, þið hefðuð átt að sýna álveri meiri áhuga. Það er þetta með áhugann á álverum, rafskautaverksmiðjum og annarri stóriðju, hann fer þverrandi. Við getum ekki haft áhuga á ferðamennsku og auglýst Ísland sem ferðamannaparadís og á sama tíma eyðilagt hverja náttúruperluna á fætur annarri. Héraðsvötn eru náttúruperla.
    Stundum, nú síðast í nýlegum umræðu um lýðræðið á ráðstefnu HÍ og Mbl., hefur komið fram sú kenning að stjórnmálamenn séu innilokuð stétt. Þeir sitji í sínum ranni, sínum Babelsturni yfir sínum áhugamálum og heyri alls ekki hvað fólkið segir. Heyri ekki þá umræðu sem fram fer í kringum þá, einangrunin er svo pottþétt. Getur þetta verið tilfellið? Andstaða við stórvirkjanir og meiri stóriðju fer vaxandi, fáir ef nokkur vill álver í hvern fjörð á Íslandi en valdamenn grúfa sig bara betur yfir sitt og keyra málin áfram.
    Hið alvarlega í umræðunni um virkjunarmál í Skagafirði er þetta: Villinganesvirkjun er þegar búin að fara í gegnum umhverfismat. (Raunar er engin leið að sjá til hvers slíkar framkvæmdir fara í umhverfismat, þar sem ekki er hlustað eftir andstæðum rökum.) Ef Villinganes fer inn á skipulag Skagafjarðar þá er leiðin greið, Rarik og co. getur komið daginn eftir og byrjað að sprengja. Skatastaðavirkjun á lengra í land en kvörnin malar.
    Ég skora á fólk að hugsa þessi mál og hugsa upphátt. Hugsa t.d. um hvort það vill uppistöðulón í Bugum, álver við Kolkuós, Austurdal með tveimur stöðvarhúsum svo eitthvað sé nefnt. Ég sendi boltann til Valgeirs Kárasonar á Sauðárkróki og skora á hann að láta í sér heyra og koma fram með sín sjónarmið í þessu máli.



Fylgiskjal VII.


Dauðadómur yfir starfsemi okkar.
(Morgunblaðið, 23. september 2004.)

    Magnús Sigmundsson, framkvæmdastjóri Hestasports – Ævintýraferða, sem staðið hafa fyrir vinsælum flúðasiglingum í Vestari- og Austari-Jökulsá í Skagafirði, segir að verði af áformum um Skatastaðavirkjun þýði það „dauðadóm yfir okkar starfsemi“. Siglingarnar muni leggjast af þar sem úttak virkjunarinnar yrði það neðarlega í Austari-Jökulsá, eða á móts við mynni Merkigils miðað við frumhönnun virkjunarinnar.
    Magnús segir að Skatastaðavirkjun muni að óbreyttu eyðileggja eina „flottustu“ ána í Evrópu sem bjóði upp á flúðasiglingar, eða flúðafjör eins og hann vill nefna þessa ferðaþjónustu. Verði af virkjuninni verði aðeins hægt að sigla nokkrar vikur á haustin þegar flæðir yfir á stíflu virkjunarinnar.
    Magnús bendir á að þúsundir ferðamanna fari í þessar siglingar í skagfirsku jökulánum og þær séu ekki síður orðnar vinsælar hjá hinum efnameiri ferðamönnum. „Hingað koma milljarðamæringar í þyrlum til okkar, til að komast í siglingu niður ána,“ segir Magnús.
    Hestasport – Ævintýraferðir hafa byrjað sínar dagssiglingar í Austari-Jökulsá við bæinn Skatastaði. Magnús segir úttakið koma enn neðar og þar með sé „draumurinn búinn“. Eftirsóttasti kafli leiðarinnar sé frá Skatastöðum og niður fyrir Merkigil, en siglingarnar enda niður undir bænum Stekkjarflötum í Austurdal.

Vita ekki hvað þeir eru að gera.
    Fram hefur komið í Morgunblaðinu að meiri hluti sveitarstjórnar Skagafjarðar, sem áður var mótfallinn hugmyndum um Villinganesvirkjun, vill setja Skatastaðavirkjun inn á aðalskipulag, með þeim tilgangi að raforka frá virkjunni nýtist til stóriðju í Skagafirði. „Ætla okkar menn virkilega að setja þetta af stað?“ spyr Magnús, „þá vona ég bara að guð hjálpi þeim því þeir vita ekki hvað þeir eru að gera.“



Fylgiskjal VIII.


Valgeir Kárason:

Virkjum frekar mannauðinn.
(Feykir, 3 40/2004.)

    Ég vil byrja á að þakka Önnu Dóru Antonsdóttur fyrir að hefja á opinberum vettvangi, hér í Feyki, umræðu til varnar skagfirskri náttúru fyrir skammsýnum mönnum og Sigríði Sigurðardóttur fyrir að fylgja því eftir.

Hvers virði er frelsið?
    Nú þegar mikil umræða er í Skagafirði um skipulagsmál tengdum stórvirkjunum í skagfirsku jökulsánum, vakna ýmsar spurningar um umhverfismál og náttúruvernd. Ekki hvað síst tengjast þessar spurningar og hugleiðingar því hvernig við viljum sjá framtíð Skagafjarðar og íbúa hans, hvaða ímynd við viljum sem Skagfirðingar standa fyrir og hvaða framtíðarsýn við höfum. Hvernig framtíð viljum við búa börnum okkar hér í Skagafirði? Hvað viljum við Skagfirðingar hafa að segja um framtíð okkar og ákvarðanatöku? Viljum við sjálfir hafa eitthvað að segja um hvað utanaðkomandi aðilar róta til og eyðileggja fyrir framan augun á okkur án þess að geta nokkra rönd við reist? Eigum við bara að gefa út skotveiðileyfi á umhverfi okkar án þess að hafa síðan nokkuð um það að segja hvort það komi okkur til góða í auknum lífsgæðum eður ei?
    Í nýliðnum þætti Spaugstofunnar var okkur sýnd „spaugileg“ mynd af þjóð sem var afar aumkunarverð, með skóför á bakinu af því að gengið hafði verið yfir hana á skítugum skónum, verið valtað yfir hana. Það er gott að fá svona áminningar af og til. Því miður eru alltaf á hverjum tíma til hagsmunaaðilar sem hugsa aðeins um eigið skinn og svífast einskis.
    Ætlum við Skagfirðingar að láta valta yfir okkur í virkjanamálum og láta aðra hrifsa til sín þau auðæfi, sem fólgin eru í náttúrulegum aðstæðum hér með því að virkja fallvötnin okkar, án þess að nokkur trygging sé fyrir að við fáum nokkurn umráðarétt yfir, né ágóða af, eyðileggja dýrmæta ímynd og framtíðarmöguleika, sem er okkar íbúanna hér í Skagafirði? Ég segi nei og veit að margir eru mér sammála.

Að virkja mannauðinn
    Líklegt er að þessi auðlegð okkar í ósnortinni náttúru verði okkur margfalt verðmætari án stórvirkjana í framtíðinni. Ef við Skagfirðingar, ætlum að markaðssetja okkur með hérað í íslenska hestsins, með minningartengda ferðaþjónustu, frábæra matvælaframleiðslu úr sjávarfangi og landbúnaðarafurðum, hreinleika í matvælaiðnaði, sjálfbært samfélag, alþjóðlegt skólasamfélag, með einstaka möguleika á heimsvísu í fljótareið (river rafting) og svo mætti lengi telja, þá er öruggt að við erum margfalt betur sett án þeirra skemmdarverka sem gætu falist í stórvirkjunum á borð við Skatastaðaðavirkjun og Villinganesvirkjun.
    Það hefur sýnt sig að vegna dugnaðar fjölmargra einstaklinga á Skagafjörður mikla og góða framtíð fyrir sér án stórvirkjana. Bjartsýni ríkir og ekki hefur verið fólksfækkun hér undanfarið. Miklir möguleikar felast í því að virkja þann mannauð sem hér er og við erum á góðri leið með nú þegar.
    Því miður hefur lítið verið reynt að meta verðmæti fólgin í einstæðri náttúru og heildstæðum og lítt snortnum víðernum okkar séu þau varðveitt og geymd, eða hversu mikið þau verðmæti aukast með hverju árinu, sem þrengist að þessum víðernum og þau verða sjaldgæfari, ekki aðeins á landsvísu heldur heimsvísu.
    Ómar Ragnarsson hefur bent á það að viðhorf fólks til náttúruverðmæta hefur breyst mjög mikið á síðustu 50 árum og miklar líkur séu á að sú þróun verði áfram.

Afsal frelsis og yfirráða
    Við höfum haft fyrir okkur reynslu Austur-Húnvetninga varðandi Blönduvirkjun og m.a. horft upp á það, að í stað þess að nýta tiltölulega ódýra orku frá þeirri virkjun til atvinnuuppbyggingar hér á Norðurlandi vestra, hefur orkan verið að mestu flutt suður yfir heiðar með gífurlegum flutningstöpum til stóriðjukaupenda, eins og eigenda Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga, sem fá orku hjá okkur Íslendingum á um þrefalt lægra verði en þeim býðst í heimalandinu, Noregi.
    Hvers konar barnaskapur er það að halda því fram að við Skagfirðingar getum eitthvað haft með það að gera hvar sú orka, er framleidd yrði hér í Skagafirði, verði endilega nýtt hér. Til þess að það gæti orðið þyrfti margt að breytast.
    Eins og við Íslendingar ættum að vera farnir að átta okkur á það er deginum ljósara að fjármagnið og eigendur þess munu ávallt leita hámarks ávöxtunar fyrir sig og sína. Þannig ætti það að vera ljóst að ef við gefum „skotleyfi“ á Jökulsárnar okkar með því að setja þær á aðalskipulag Skagafjarðar erum við þar með búnir að afsala okkur því frelsi sem felst í því að hafa umráðarétt yfir auðlindum okkar.

Fórn til frambúðar
    Afskaplega mikil áhætta og fórn til frambúðar væri tekin með virkjun Jökulsánna, eins og meðal annars Umhverfissamtök Skagafjarðar hafa bent á í athugasemdum sínum um mat á umhverfisáhrifum, vegna Villinganesvirkjunar. Þar er bent á að ekki var lagt mat á áhrif virkjunar á land og lífríki neðan virkjunar eða sjávarins, sem ekkert hefur verið rannsakað. Við höfum hið friðlýsta svæði Miklavatn og Skógana og svo Austur-Eylendið, sem lagt hefur verið til að friðlýst verði, vegna mikilla náttúrulegra verðmæta. Uppi á hálendinu eru svæði eins og Orravatnsrústir á náttúruminjaskrá og fleiri verðmæt svæði.

Framtíðarnefnd 1997
    Árið 1997 var sett á stofn nefnd á vegum Sauðárkróksbæjar, framtíðarnefnd, sem hafði það verkefni að setja fram í skýrslu framtíðarsýn fyrir Sauðárkrók og Skagafjörð.
    Í nefndinni sátu 9 Skagfirðingar af hinum ýmsu starfssviðum og með mismunandi menntun og reynslu, ásamt starfsmanni. Nefndin skilaði skýrslu sinni í júlí sama ár og þar segir m.a. í kaflanum um umhverfis- og ferðamál:
     „Það er mat nefndarinnar, að í Skagafirði eigi ekki að stefna að efnaiðnaði eða annarri mengandi stóriðju. Setja beri stefnuna á „hreina“ atvinnustarfsemi og nota umhverfið sem aðdráttarafl á fólk til búsetu.“ … Og spurt er: „Hver er þá tíðarandinn? Hornsteinar hans eru að minnsta kosti þrír; gæði, innihald og umhverfissátt. Stefnan er á sjálfbært þekkingarsamfélag.“
    Nefndin hafði þannig ákveðna ímynd í huga og taldi að gæta þyrfti samræmis í framtíðarstefnumótun.

Lokaorð
    Í guðanna bænum, þið sem hafið með ákvarðanir í skipulagsmálum okkar Skagfirðinga að gera, látið náttúruna njóta vafans og leyfið börnum okkar að hafa eitthvað frelsi til ákvarðanatöku um umhverfi sitt í framtíðinni. Forðið okkur frá því að virkjanir í skagfirsku Jökulsánum fari á aðalskipulag núna og gefið okkur Skagfirðingum þannig einhverja möguleika á ákvarðanatöku í þessum umhverfis- og atvinnumálum í nútíð og framtíð.
    Við erum stoltir Skagfirðingar og viljum ekki láta vaða yfir okkur á skítugum skónum.