Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 417. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 668  —  417. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um stofnanir á sviði samgöngumála og Háskólann á Akureyri.

Frá Ólöfu Nordal.



     1.      Telur ráðherra mögulegt að færa hluta af starfsemi stofnana á sviði samgönguráðuneytis, t.d. á sviði vegamála og siglingamála, til Akureyrar?
     2.      Er að mati ráðherra grundvöllur fyrir samstarfi milli Háskólans á Akureyri og stofnana á sviði samgöngumála til að renna frekari stoðum undir starfsemi skólans?