Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 425. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 678  —  425. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um virkjunarkosti á Vestfjörðum.

Frá Kristni H. Gunnarssyni.



     1.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir frekari athugun á virkjunarkostum á Vestfjörðum, svo sem Glámuvirkjun?
     2.      Hver er áætlaður kostnaður við Glámuvirkjun umfram sambærilega kosti annars staðar á landinu, miðað við fyrirliggjandi upplýsingar?
     3.      Hver yrðu helstu áhrif Glámuvirkjunar á val á virkjunarkostum utan Vestfjarða?