Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 491. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 783  —  491. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um flutningskerfi Landsnets á Vestfjörðum.

Frá Kristni H. Gunnarssyni.



     1.      Verður ráðist í að styrkja flutningskerfi Landsnets á Vestfjörðum á þessu kjörtímabili til þess að auka áreiðanleika orkuafhendingar?
     2.      Hver er afstaða ráðherra til þeirra fjögurra leiða sem kynntar eru í áfangaskýrslu Landsnets frá desember 2007 um flutningskerfi Vestfjarða?
     3.      Er ráðherra reiðubúinn að láta skoða þann möguleika að styrkja flutningskerfið með hringtengingu um Vestfirði þannig að lína lægi frá Ísafirði um Ísafjarðardjúp yfir í Strandasýslu og þaðan suður að Hrútatungu?