Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 492. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 784  —  492. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um skáksetur helgað afrekum Bobbys Fischers og Friðriks Ólafssonar.

Flm.: Guðni Ágústsson, Einar Már Sigurðarson, Ellert B. Schram,
Guðfinna S. Bjarnadóttir, Guðjón A. Kristjánsson, Huld Aðalbjarnardóttir,
Kristinn H. Gunnarsson, Magnús Stefánsson, Ólöf Nordal,
Steingrímur J. Sigfússon, Illugi Gunnarsson.


    Alþingi ályktar að fela menntamálaráðherra að skipa starfshóp til að útfæra hugmyndir um alþjóðlegt skáksetur í Reykjavík sem helgað yrði skákafrekum stórmeistaranna Friðriks Ólafssonar annars vegar og Bobbys Fischers hins vegar.

Greinargerð.


    Skákmenningu Íslendinga má rekja langt aftur í aldir. Af fornum bókum má sjá að Íslendingar tefldu talsvert fyrr á öldum og um það eru ýmsar heimildir. Í Búalögum um árið 1500 er þess getið að það kosti 12 álnir að kenna að tefla.
    Til þess að ná langt í skák þarf fjölþætta hæfileika. Snilli skákmeistarans er samofin úr mörgum eiginleikum hugarflugs og rökhyggju. Skákin á sér kröfu sem er sameiginleg öðrum listum, kröfu um sköpunargáfu, samræmi, einbeitingu, ástríðu, frumleika og viljastyrk.
    Friðrik Ólafsson stendur föstum fótum í íslenskri skákmenningu. Hann byggir á reynslu og afrekum þeirra íslensku skákmanna sem fóru fremstir í flokki á undan honum. Snillingar festa rætur þar sem menning og hefð eru með blóma. Rósir vaxa ekki af sjálfsdáðum á eyðisöndum. Frægðarferill Friðriks við skákborðið er langur. Vert er að sýna dálítið brot til þess að minna á hversu glæsilegur ferillinn er. Hann varð Íslandsmeistari 1952, 17 ára gamall, skákmeistari Norðurlanda 1953 og þá sá yngsti sem því marki hafði náð. Eitt kunnasta afrek Friðriks Ólafssonar er þegar hann náði efsta sæti í Hastings ásamt Kortsnoj 1955–56. Þetta var aðeins upphafið og Friðrik átti síðar eftir að vinna marga frækna sigra á skáksviðinu. Friðrik var útnefndur stórmeistari í skák 1958, fyrsti Íslendingurinn sem náði þeim titli. Þá fór mikil hrifningaralda um íslenskt þjóðfélag. Friðrik Ólafsson hefur ritað bækur um skák, m.a. um heimsmeistaraeinvígið 1972 með Freysteini Jóhannssyni. Haft var eftir Bobby Fischer að skýringar Friðriks við skákirnar frá einvíginu 1972 séu þær bestu sem gerðar hafa verið.
    Friðrik Ólafsson var kosinn forseti Alþjóðaskáksambandsins, FIDE, og Ísland varð þannig áhrifaland í skáklífi heimsins. Viðbrögð skákheimsins við kjöri Friðriks voru almenn ánægja. Fyrst og fremst var kjörið viðurkenning á einstaklingnum Friðriki Ólafssyni og lýsti trausti á honum og sýndi vinsældir hans. Í annan stað var kjörið viðurkenning á skákhefð Íslendinga. Ísland var orðið þungamiðja í skáklífi heimsins. Það er sama hversu marga og sterka skákmeistara Íslendingar eignast, Friðrik verður alltaf Friðrik. Yfir nafni hans og ferli verður alltaf einhver ævintýrablær. Ekki ólíkt og með Bobby Fischer þó að mennirnir geti varla verið ólíkari.
    Robert James Fischer, best þekktur sem Bobby Fischer, varð heimsmeistari í skák 1. september 1972 eftir einvígi við Boris Spasskí í Reykjavík. Það einvígi var oft nefnt einvígi aldarinnar og endurspeglaðist baráttan í andrúmslofti kalda stríðsins sem stóð þá sem hæst. Flestir munu á einu máli um að afrek Fischers þá verði aldrei endurtekið, þær aðstæður sem ríktu þá í heiminum muni aldrei koma aftur.
    Fischer varð yngsti stórmeistari sögunnar og framlag hans til skáklistarinnar var einstakt. Hann var fyrirmynd heillar kynslóðar skákmanna þannig að enginn gat komist hjá því að dá hann.     Frægt varð er Fischer á árunum 1970–71 sigraði með miklum yfirburðum hvern andstæðing sinn á fætur öðrum í áskorendaeinvígjum um réttinn til að tefla við ríkjandi heimsmeistara. Þrátt fyrir langa fjarveru frá skákiðkun eftir einvígið við Boris Spasskí var hann ávallt dáður sem einn af mestu meisturum skáksögunnar.
    Fischer bjó í Reykjavík síðustu æviár sín, eftir að góðir vinir hans, sem mynduðu stuðningshóp RJF, beittu sér fyrir að honum yrði veittur íslenskur ríkisborgararéttur. Þeir sem mynduðu hópinn voru Einar S. Einarsson, Garðar Sverrisson, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Guðmundur G. Þórarinsson, Helgi Ólafsson, Hrafn Jökulsson, Ingvar Ásmundsson, Magnús Skúlason og Sæmundur Pálsson. Mun liðveisla Alþingis og ríkisstjórnar Íslands í því máli, með Davíð Oddsson forsætisráðherra í broddi fylkingar, seint gleymast.
    Fischer lést eftir baráttu við alvarleg nýrnaveikindi og var jarðsettur í kyrrþey að eigin ósk í kirkjugarði Laugardæla í Flóa hinn 21. janúar 2008.
    Meðan skák er tefld á jörðinni mun nafn Bobby Fischers lifa. Skákir hans verða tefldar aftur og aftur, ungum og öldnum til gleði og ánægju. Það er vert að minnast skákafreka Fischers hér á Íslandi, svo samofin er þau minningu meistarans. Þar eigum við Íslendingar ríkar skyldur við umheiminn.
    Alþjóðlegt skáksetur í Reykjavík yrði auglýsing fyrir land og þjóð og verðugur bautasteinn um glæstan árangur íslenskra skákmanna í þeirri hugans íþrótt sem skákin er. Skáksetur þetta mundi ekki stangast á við starfsemi fyrirhugaðrar Skákakademíu Reykjavíkur heldur mundi það þvert á móti falla vel að því verðuga og metnaðarfulla markmiði að Reykjavík standi undir nafni sem skákhöfuðborg heimsins árið 2010.