Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 507. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 948  —  507. mál.




Svar



samgönguráðherra við fyrirspurn Bjarna Harðarsonar um brot á verklagsreglum vegna Grímseyjarferju.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Með hvaða hætti hefur verið tekið á þeim brotum sem segir í yfirlýsingu frá samgönguráðuneytinu vegna Grímseyjarferju í ágúst sl. að tekið verði á með viðeigandi hætti og í samræmi við góða stjórnsýslu, en í yfirlýsingunni segir að ekki hafi verið fylgt skýrum verklagsreglum ráðuneytisins um verkefnaáætlun, upplýsingar til ráðuneytisstjóra um gang mála og samþykki fyrir verkefnaáætlun?

    Í verklagsreglu ráðuneytisins um almenna málsmeðferð eru leiðbeiningar um hvernig skuli staðið að undirbúningi verkefna. Þar er skýrt tekið fram að áætlun skuli vinna fyrir veigameiri verkefni. Meðal annars segir að mikilvægt sé að vanda til verksins í upphafi enda er undirbúningur lykill að árangri. Markmið verkefnisins þarf að vera skýrt og leið að markmiðinu vörðuð. Greina þarf frá verkefnastjóra, þátttakendum og þeim samráðsaðilum sem æskilegt er að komi að málinu. Útbúa þarf tímaáætlun og eftir atvikum gera kostnaðaráætlun.
    Rétt er að geta þess að ráðuneytið kemur sjaldnast að undirbúningi og framkvæmd verkefna sem eru á verksviði stofnana þess, enda eru stofnanir ráðuneytisins öflugar með mikla sjálfstjórn og vel til þess fallnar að stýra verkefnum. Það er þó alkunna að margt fór á annan veg en ætlað var varðandi Grímseyjarferju. Þegar málefni Grímseyjarferju voru komin inn á borð ráðuneytisins og blikur á lofti hvert stefndi var full ástæða til þess að skilgreina verkefnið eins og kveðið er á um í verklagsreglu ráðuneytisins. Það var ekki gert og því fékk málið ekki þá athygli sem það ella hefði fengið.
    Til að bregðast við þessu og til að undirbúa starfsmenn fyrir aukin umsvif vegna nýrra málaflokka, sveitarstjórnarmála og málefna Keflavíkurflugvallar, fékk ráðuneytið ráðgjafafyrirtækið Capacent til liðs við sig haustið 2007. Markmið ráðuneytisins er að samþætta betur stefnumótun og áætlanagerð og gera verklag vandaðra og skilvirkara. Frá síðastliðnu hausti hafa starfsmenn ráðuneytisins unnið að þessu markmiði. Allir starfsmenn ráðuneytisins hafa lagt sitt af mörkum. Stefnt er að því að vinnan klárist í maí nk. og standa vonir til að hún skili sér í betri árangri í störfum ráðuneytisins.
    Í svarinu getur ráðherra ekki látið hjá líða að nefna Vegagerðina. Vegamálastjóri hefur sagst taka aðfinnslur Ríkisendurskoðunar mjög alvarlega og að farið verði ofan í hvað betur má gera í framtíðinni því að ekki sé hægt að breyta því sem hefur verið gert í fortíðinni. Síðastliðið haust óskaði ráðherra eftir því að Ríkisendurskoðun framkvæmdi stjórnsýsluúttekt á Vegagerðinni. Sú úttekt stendur enn yfir og er niðurstöðu að vænta á næstu dögum. Í kjölfar niðurstöðunnar munu ráðuneytið og Vegagerðin vinna í sameiningu að því að færa mál til betri vegar svo að Grímseyjarferjuævintýrið endurtaki sig ekki.