Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 275. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 961  —  275. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um stofnun norrænna lýðháskóla.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Karl V. Matthíasson, formann Vestnorræna ráðsins og Íslandsdeildar þess, og Þórð Þórarinsson, framkvæmdastjóra Vestnorræna ráðsins. Umsagnir bárust um málið frá Kennaraháskóla Íslands, Bandalagi íslenskra námsmanna, Norræna félaginu og Skálholtsskóla, auk þess sem álit barst frá menntamálanefnd Alþingis.
    Með tillögunni er lagt til að Alþingi skori á ríkisstjórnina að gera samkomulag við landsstjórnir Færeyja og Grænlands um fjárhagslegan stuðning við vinnuhóp á vegum Vestnorræna ráðsins sem í samvinnu við forsætisnefnd og skrifstofu ráðsins útfæri tillögu að stofnun norrænna lýðháskóla á Íslandi, Grænlandi og í Færeyjum. Með ályktun nr. 8/2007 sem samþykkt var á ársfundi Vestnorræna ráðsins 23. ágúst 2007 samþykkti ráðið að beina þessari áskorun til ríkisstjórna Íslands, Færeyja og Grænlands og benti á að á tíu ára afmæli þess væri tilefni til að ráðast í verkefni sem vitnaði um þau markmið ráðsins að efla samvinnu milli Vestur-Norðurlandanna og styrkja stöðu þeirra innan norræns samstarfs.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
    Bjarni Benediktsson og Guðfinna S. Bjarnadóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 7. maí 2008.



Árni Páll Árnason,


varaform., frsm.


Steingrímur J. Sigfússon.


Ásta R. Jóhannesdóttir.



Siv Friðleifsdóttir.


Lúðvík Bergvinsson.


Kristinn H. Gunnarsson.



Björk Guðjónsdóttir.