Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 656. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Prentað upp.

Þskj. 1317  —  656. mál.
Skriflegt svar.




Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um beinar aðgerðir til að jafna flutningskostnað.

Frá Jóni Bjarnasyni.



     1.      Hvenær hyggst ríkisstjórnin uppfylla loforð um aðgerðir til að jafna flutningskostnað á landsbyggðinni sem koma áttu til framkvæmda nú í ár?
     2.      Hvernig hefur fé sem ætlað var af fjárlögum til þessara jöfnunaraðgerða verið ráðstafað?


Skriflegt svar óskast.