Fundargerð 136. þingi, 0. fundi, boðaður 2008-10-01 13:30, stóð 14:12:03 til 14:47:06 gert 1 15:1
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

ÞINGSETNINGARFUNDUR

miðvikudaginn 1. okt.

Árið 2008, miðvikudaginn 1. október, var hundrað þrítugasta og sjötta löggefandi Alþingi sett í Reykjavík. Er það hundraðasta og ellefta aðalþing í röðinni en hundrað fimmtugasta og fyrsta samkoma frá því er Alþingi var endurreist.

Þingmenn söfnuðust saman í Alþingishúsinu kl. 1.15 miðdegis og gengu þaðan til guðsþjónustu í Dómkirkjunni kl. 1.30. Séra Anna Sigríður Pálsdóttir, sóknarprestur við Dómkirkjuna, predikaði og þjónaði fyrir altari ásamt biskupi Íslands, herra Karli Sigurbjörnssyni. Séra Anna Sigríður lagði út af Mattheusarguðspjalli 5:13--16.

Að lokinni guðsþjónustu gengu þingmenn aftur til Alþingishússins, fundarsalar Alþingis.

Þessir menn skipuðu þingið:

  1. Arnbjörg Sveinsdóttir, 5. þm. Norðaust.
  2. Atli Gíslason, 7. þm. Suðurk.
  3. Ágúst Ólafur Ágústsson, 4. þm. Reykv. s.
  4. Álfheiður Ingadóttir, 11. þm. Reykv. s.
  5. Ármann Kr. Ólafsson, 4. þm. Suðvest.
  6. Árni Páll Árnason, 11. þm. Suðvest.
  7. Árni Johnsen, 6. þm. Suðurk.
  8. Árni M. Mathiesen, 1. þm. Suðurk.
  9. Árni Þór Sigurðsson, 9. þm. Reykv. n.
  10. Ásta R. Jóhannesdóttir, 8. þm. Reykv. s.
  11. Ásta Möller, 7. þm. Reykv. s.
  12. Birgir Ármannsson, 9. þm. Reykv. s.
  13. Birkir J. Jónsson, 6. þm. Norðaust.
  14. Bjarni Benediktsson, 3. þm. Suðvest.
  15. Bjarni Harðarson, 8. þm. Suðurk.
  16. Björgvin G. Sigurðsson, 2. þm. Suðurk.
  17. Björk Guðjónsdóttir, 9. þm. Suðurk.
  18. Björn Bjarnason, 6. þm. Reykv. s.
  19. Einar K. Guðfinnsson, 5. þm. Norðvest.
  20. Einar Már Sigurðarson, 7. þm. Norðaust.
  21. Ellert B. Schram, 11. þm. Reykv. n.
  22. Geir H. Haarde, 1. þm. Reykv. s.
  23. Grétar Mar Jónsson, 10. þm. Suðurk.
  24. Guðbjartur Hannesson, 2. þm. Norðvest.
  25. Guðfinna S. Bjarnadóttir, 3. þm. Reykv. n.
  26. Guðjón A. Kristjánsson, 6. þm. Norðvest.
  27. Guðlaugur Þór Þórðarson, 1. þm. Reykv. n.
  28. Guðni Ágústsson, 3. þm. Suðurk.
  29. Gunnar Svavarsson, 2. þm. Suðvest.
  30. Helgi Hjörvar, 7. þm. Reykv. n.
  31. Herdís Þórðardóttir, 8. þm. Norðvest.
  32. Höskuldur Þórhallsson, 10. þm. Norðaust.
  33. Illugi Gunnarsson, 3. þm. Reykv. s.
  34. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, 2. þm. Reykv. s.
  35. Jóhanna Sigurðardóttir, 5. þm. Reykv. n.
  36. Jón Bjarnason, 4. þm. Norðvest.
  37. Jón Gunnarsson, 7. þm. Suðvest.
  38. Jón Magnússon, 10. þm. Reykv. s.
  39. Karl V. Matthíasson, 7. þm. Norðvest.
  40. Katrín Jakobsdóttir, 4. þm. Reykv. n.
  41. Katrín Júlíusdóttir, 5. þm. Suðvest.
  42. Kjartan Ólafsson, 4. þm. Suðurk.
  43. Kolbrún Halldórsdóttir, 5. þm. Reykv. s.
  44. Kristinn H. Gunnarsson, 9. þm. Norðvest.
  45. Kristján Þór Júlíusson, 1. þm. Norðaust.
  46. Kristján L. Möller, 3. þm. Norðaust.
  47. Lúðvík Bergvinsson, 5. þm. Suðurk.
  48. Magnús Stefánsson, 3. þm. Norðvest.
  49. Ólöf Nordal, 9. þm. Norðaust.
  50. Pétur H. Blöndal, 6. þm. Reykv. n.
  51. Ragnheiður E. Árnadóttir, 9. þm. Suðvest.
  52. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, 12. þm. Suðvest.
  53. Sigurður Kári Kristjánsson, 8. þm. Reykv. n.
  54. Siv Friðleifsdóttir, 10. þm. Suðvest.
  55. Steingrímur J. Sigfússon, 4. þm. Norðaust.
  56. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, 10. þm. Reykv. n.
  57. Sturla Böðvarsson, 1. þm. Norðvest.
  58. Valgerður Sverrisdóttir, 2. þm. Norðaust.
  59. Þorgerður K. Gunnarsdóttir, 1. þm. Suðvest.
  60. Þórunn Sveinbjarnardóttir, 8. þm. Suðvest.
  61. Þuríður Backman, 8. þm. Norðaust.
  62. Ögmundur Jónasson, 6. þm. Suðvest.
  63. Össur Skarphéðinsson, 2. þm. Reykv. n.

Forseti Íslands setur þingið.

[14:12]

Þá er þingmenn höfðu skipað sér til sætis gekk forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, til ræðustóls og las forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman þriðjudaginn 1. október.

Forseti lýsti yfir að Alþingi Íslendinga væri sett samkvæmt bréfi því sem hann hafði lesið.

Forseti ávarpaði því næst alþingismenn. Við lok ávarpsins stóð þingheimur upp og forsætisráðherra, Geir H. Haarde, mælti: ,,Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.`` Tóku þingmenn undir þessi orð með ferföldu húrrahrópi.

Strengjakvartett flutti lagið Hver á sér fegra föðurland.

Forseti Alþingis heilsaði starfsmönnum fyrir hönd þingmanna og óskaði þess að komandi þing yrði landi og þjóð til heilla.


Minning Jósefs H. Þorgeirssonar.

[14:31]

Forseti Alþingis minntist Jósefs H. Þorgeirssonar, fyrrverandi alþingismanns, sem lést 23. september sl.

Strengjakvartett flutti lagið Ísland ögrum skorið.


Ávarp forseta Alþingis.

[14:36]

Forseti ávarpaði þingheim.

Fundi frestað kl. 14:47.

---------------