Fundargerð 136. þingi, 2. fundi, boðaður 2008-10-02 19:50, stóð 19:50:24 til 22:06:07 gert 3 7:40
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

2. FUNDUR

fimmtudaginn 2. okt.,

kl. 7.50 síðdegis.

Dagskrá:

Fjarvistarleyfi:


Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.

[19:50]

Umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra var útvarpað og sjónvarpað fimmtudaginn 2. október 2008, kl. 19.50. Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hafði 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra höfðu 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð höfðu þingflokkarnir 6 mínútur en í þeirri þriðju 5 mínútur hver þingflokkur.

Röð flokkanna var í öllum umferðum þessi: Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin -- grænt framboð, Samfylkingin, Framsóknarflokkur og Frjálslyndi flokkurinn.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk voru Geir H. Haarde forsætisráðherra í fyrstu umferð, Ásta Möller, 7. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri umferð og Illugi Gunnarsson, 3. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna -- grænt framboð voru Steingrímur J. Sigfússon, 4. þingmaður Norðausturkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri Katrín Jakobsdóttir, 4. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, og í þriðju umferð Atli Gíslason, 7. þingmaður Suðurkjördæmis.

Ræðumenn Samfylkingarinnar voru í fyrstu umferð Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra, í annarri og Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra í þriðju umferð.

Fyrir Framsóknarflokk töluðu Guðni Ágústsson, 3. þingmaður Suðurkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri Valgerður Sverrisdóttir, 2. þingmaður Norðausturkjördæmis, og í þriðju umferð Birkir J. Jónsson, 6. þingmaður Norðausturkjördæmis.

Fyrir Frjálslynda flokkinn töluðu í fyrstu umferð Guðjón A. Kristjánsson, 6. þingmaður Norðvesturkjördæmis, Jón Magnússon, 10. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri umferð en í þriðju umferð Grétar Mar Jónsson, 10. þingmaður Suðurkjördæmis.

Þingmálaskrá:

[22:05]

Útbýting þingskjala:

Fundi slitið kl. 22:06.

---------------