Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 326. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 562  —  326. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um upplýsingar seðlabankastjóra um aðgerðir breskra stjórnvalda.

Frá Ragnheiði Ólafsdóttur.


    
    Hefur ráðherra leitað skýringa á því hvers vegna seðlabankastjóri neitar, m.a. á fundi með viðskiptanefnd, að svara því hvaða upplýsingar það eru sem hann segist búa yfir um ástæður þess að bresk stjórnvöld beittu hryðjuverkalögum gegn Landsbanka Íslands og hvaða upplýsingar þetta eru?


Skriflegt svar óskast.