Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 355. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 604  —  355. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um kostnað við gjaldeyrisvaraforðann.

Frá Helga Hjörvar.



     1.      Hver var ávöxtun gjaldeyrisvaraforðans árlega eftir myntum árin 2004–2008, annars vegar í prósentum og hins vegar upphæðum fyrir hverja mynt?
     2.      Hver er áætlaður kostnaður hins opinbera af sambærilegum lántökum eftir myntum á sama árabili, annars vegar í prósentum og hins vegar upphæðum fyrir hverja mynt?


Skriflegt svar óskast.