Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 207. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 609  —  207. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 116 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

Frá sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Steinar Inga Matthíasson frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti. Umsagnir hafa borist frá Samtökum fiskvinnslustöðva, Hafrannsóknarstofnuninni, Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, Guðmundi Runólfssyni hf., Landssambandi íslenskra útvegsmanna, Náttúrufræðistofnun Íslands, Félagi vélstjóra og málmtæknimanna, Landssambandi smábátaeiganda, Umhverfisstofnun og Veiðimálastofnun.
    Með frumvarpinu er annars vegar lagt til að framlengdur verði gildistími ákvæðis til bráðabirgða I í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, sem heimilar ráðherra að úthluta tilteknum aflaheimildum til áframeldis þorsks og hins vegar að framlengdur verði gildistími ákvæðis til bráðabrigða V í sömu lögum um frest aðila til að ráðstafa krókaflahlutdeild þannig að hún rúmist innan tiltekinna marka sem sett eru í 2. og 3. mgr. 13. gr. laganna.
    Á fundum nefndarinnar voru ræddar þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu. Nefndin fjallaði um úthlutun þorskeldiskvóta og er sammála um mikilvægi þess að styðja við tilraunir með eldi á sjávarfiski, enda séu væntingar gerðar til slíks eldis til lengri tíma litið auk þess sem gert er ráð fyrir að innan fárra ára muni kynbótastarfsemi leiða til þess að hægt verði að leggja af úthlutun þorskeldiskvóta og byggja eingöngu á eldisseiðum. Nefndin styður því að ráðherra verði heimilt að úthluta þorskeldiskvóta til fiskveiðiársins 2014/2015.
    Vegna 2. gr. frumvarpsins vekur nefndin athygli á að aðilum sem eru með krókaflahlutdeild sem ekki rúmaðist innan settra marka var fyrst gefinn þriggja ára frestur, við setningu laga nr. 42/2006, um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 38/1990, til að gera ráðstafanir til að hludeild þeirra væri innan marka. Þessir aðilar hafa því haft rúman tíma til að bregðast við breyttu lagaumhverfi og telur nefndin því ekki ástæðu til að víkja lengur frá ákvæðum laganna með því að framlengja frestinn um þrjú ár til viðbótar. Nefndin telur þó rétt í ljósi þeirra sérstöku aðstæðna sem uppi eru í efnahagslífi þjóðarinnar um þessar mundir að frestur skv. 2. gr. frumvarpsins verði eitt ár.
    Nefndin leggur því til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    Í stað orðanna „1. september 2012“ í 2. gr. kemur: 1. september 2010.

    Karl V. Matthíasson og Jón Gunnarsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 26. febr. 2009.



Atli Gíslason,


form., frsm.


Helgi Hjörvar.


Arnbjörg Sveinsdóttir.



Magnús Stefánsson.


Valgerður Sverrisdóttir.


Herdís Þórðardóttir.



Grétar Mar Jónsson.