Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 382. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 644  —  382. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um framkvæmd samgönguáætlunar.

Frá Arnbjörgu Sveinsdóttur.



     1.      Hvaða sjónarmið búa að baki þeirri ákvörðun ráðherra að veita einungis tæplega helmingi ráðstöfunarfjár til nýrra samgönguframkvæmda á þessu ári til verkefna í landsbyggðarkjördæmum?
     2.      Hvernig hyggst ráðherra tryggja það að markmið gildandi samgönguáætlunar komi til framkvæmda í ljósi fyrrgreindrar ákvörðunar?