Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 441. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 761  —  441. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um fæðingar í Vestmannaeyjum.

Frá Ragnheiði E. Árnadóttur.



     1.      Hvernig hyggjast heilbrigðisyfirvöld tryggja öryggi fæðandi kvenna í Vestmannaeyjum á meðan sex vikna sumarlokun skurðstofunnar þar stendur yfir í sumar?
     2.      Hvað eru margar fæðingar áætlaðar í Vestmannaeyjum á því tímabili sem um ræðir?