Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 448. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 797  —  448. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um hækkun á eigin fé fjármálafyrirtækja.

Frá Kristni H. Gunnarssyni.



    Hvað er talið að eigið fé fjármálafyrirtækja hafi samtals hækkað mikið með lögum nr. 38/2008 sem felldu niður tekjuskattsskuldbindingu fyrirtækjanna vegna söluhagnaðar af hlutabréfum sem hafði verið frestað? Svar óskast sundurliðað eftir viðskiptabönkum, fjárfestingarbönkum, sparisjóðum og öðrum fjármálafyrirtækjum.


Skriflegt svar óskast.