Fundargerð 137. þingi, 0. fundi, boðaður 2009-05-15 14:00, stóð 14:14:05 til 14:33:55 gert 15 17:27
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

ÞINGSETNINGARFUNDUR

föstudaginn 15. maí.

Árið 2009, föstudaginn 15. maí, var hundrað þrítugasta og sjöunda löggefandi Alþingi sett í Reykjavík. Er það tuttugasta og sjötta aukaþing í röðinni en hundrað fimmtugasta og önnur samkoma frá því er Alþingi var endurreist.

Þingmenn söfnuðust saman í Alþingishúsinu, anddyri Skálans, kl. 1.10 miðdegis og gengu þaðan til guðsþjónustu í Dómkirkjunni kl. 1.30. Séra Helga Soffía Konráðsdóttur predikaði og þjónaði fyrir altari ásamt biskupi Íslands, herra Karli Sigurbjörnssyni. Séra Helga Soffía lagði út af Mattheusarguðspjalli.

Að lokinni guðsþjónustu gengu þingmenn aftur til Alþingishússins, fundarsalar Alþingis.

Þessir menn skipuðu þingið:

  1. Atli Gíslason, 4. þm. Suðurk.
  2. Álfheiður Ingadóttir, 10. þm. Reykv. n.
  3. Árni Páll Árnason, 1. þm. Suðvest.
  4. Árni Johnsen, 9. þm. Suðurk.
  5. Árni Þór Sigurðsson, 5. þm. Reykv. n.
  6. Ásbjörn Óttarsson, 1. þm. Norðvest.
  7. Ásmundur Einar Daðason, 9. þm. Norðvest.
  8. Ásta R. Jóhannesdóttir, 10. þm. Reykv. s.
  9. Birgir Ármannsson, 11. þm. Reykv. s.
  10. Birgitta Jónsdóttir, 9. þm. Reykv. s.
  11. Birkir Jón Jónsson, 2. þm. Norðaust.
  12. Bjarni Benediktsson, 2. þm. Suðvest.
  13. Björgvin G. Sigurðsson, 1. þm. Suðurk.
  14. Björn Valur Gíslason, 8. þm. Norðaust.
  15. Einar K. Guðfinnsson, 5. þm. Norðvest.
  16. Eygló Harðardóttir, 7. þm. Suðurk.
  17. Guðbjartur Hannesson, 3. þm. Norðvest.
  18. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, 3. þm. Suðvest.
  19. Guðlaugur Þór Þórðarson, 5. þm. Reykv. s.
  20. Guðmundur Steingrímsson, 8. þm. Norðvest.
  21. Gunnar Bragi Sveinsson, 4. þm. Norðvest.
  22. Helgi Hjörvar, 4. þm. Reykv. n.
  23. Höskuldur Þórhallsson, 6. þm. Norðaust.
  24. Illugi Gunnarsson, 3. þm. Reykv. n.
  25. Jóhanna Sigurðardóttir, 1. þm. Reykv. n.
  26. Jón Bjarnason, 2. þm. Norðvest.
  27. Jón Gunnarsson, 12. þm. Suðvest.
  28. Jónína Rós Guðmundsdóttir, 10. þm. Norðaust.
  29. Katrín Jakobsdóttir, 2. þm. Reykv. n.
  30. Katrín Júlíusdóttir, 4. þm. Suðvest.
  31. Kristján Þór Júlíusson, 4. þm. Norðaust.
  32. Kristján L. Möller, 3. þm. Norðaust.
  33. Lilja Rafney Magnúsdóttir, 6. þm. Norðvest.
  34. Lilja Mósesdóttir, 6. þm. Reykv. s.
  35. Magnús Orri Schram, 11. þm. Suðvest.
  36. Margrét Tryggvadóttir, 10. þm. Suðurk.
  37. Oddný G. Harðardóttir, 5. þm. Suðurk.
  38. Ólína Þorvarðardóttir, 7. þm. Norðvest.
  39. Ólöf Nordal, 2. þm. Reykv. s.
  40. Pétur H. Blöndal, 7. þm. Reykv. n.
  41. Ragnheiður E. Árnadóttir, 2. þm. Suðurk.
  42. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, 8. þm. Suðvest.
  43. Róbert Marshall, 8. þm. Suðurk.
  44. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 8. þm. Reykv. n.
  45. Sigmundur Ernir Rúnarsson, 7. þm. Norðaust.
  46. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, 4. þm. Reykv. s.
  47. Sigurður Ingi Jóhannsson, 3. þm. Suðurk.
  48. Siv Friðleifsdóttir, 6. þm. Suðvest.
  49. Skúli Helgason, 7. þm. Reykv. s
  50. Steingrímur J. Sigfússon, 1. þm. Norðaust.
  51. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, 11. þm. Reykv. n.
  52. Svandís Svavarsdóttir, 3. þm. Reykv. s.
  53. Tryggvi Þór Herbertsson, 9. þm. Norðaust.
  54. Unnur Brá Konráðsdóttir, 6. þm. Suðurk.
  55. Valgerður Bjarnadóttir, 6. þm. Reykv. n.
  56. Vigdís Hauksdóttir, 8. þm. Reykv. s
  57. Þorgerður K. Gunnarsdóttir, 5. þm. Suðvest.
  58. Þór Saari, 9. þm. Suðvest.
  59. Þórunn Sveinbjarnardóttir, 7. þm. Suðvest.
  60. Þráinn Bertelsson, 9. þm. Reykv. n.
  61. Þuríður Backman, 5. þm. Norðaust.
  62. Ögmundur Jónasson, 10. þm. Suðvest.
  63. Össur Skarphéðinsson, 1. þm. Reykv. s.

Forseti Íslands setur þingið.

[14:14]

Þá er þingmenn höfðu skipað sér til sætis gekk forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, til ræðustóls og las forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman föstudaginn 15. maí.

Forseti lýsti yfir að Alþingi Íslendinga væri sett samkvæmt bréfi því sem hann hafði lesið.

Forseti ávarpaði því næst alþingismenn. Við lok ávarpsins stóð þingheimur upp og forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, mælti: ,,Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.`` Tóku þingmenn undir þessi orð með ferföldu húrrahrópi.

Strengjakvartett flutti lagið Hver á sér fegra föðurland.


Ávarp aldursforseta.

[14:31]

Aldursforseti, Jóhanna Sigurðardóttir, 5. þm. Reykv. n., bauð alþingismenn velkomna til starfa og lét í ljós þá ósk að störf Alþingis mættu verða alþingismönnum til sóma og landi og þjóð til heilla.


Kosning kjörbréfanefndar.

Fram komu tveir listar sem á voru jafnmörg nöfn og menn skyldi kjósa. Samkvæmt því lýsti forseti yfir að kosin væru án atkvæðagreiðslu:

Helgi Hjörvar (A),

Birgir Ármannsson (B),

Árni Þór Sigurðsson (A),

Ásta R. Jóhannesdóttir (A),

Vigdís Hauksdóttir (B),

Álfheiður Ingadóttir (A),

Ólöf Nordal (B),

Þórunn Sveinbjarnardóttir (A),

Margrét Tryggvadóttir (A).

Fundi frestað kl. 14:33.

---------------