Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 22. máls.
137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 22  —  22. mál.




Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um lækkun flutningskostnaðar á landsbyggðinni.

Frá Birki Jóni Jónssyni.



     1.      Hvernig hyggst ráðherra beita sér í því að lækka flutningskostnað á landsbyggðinni?
     2.      Hvernig stóð á því að 100 millj. kr. sem ætlaðar voru til lækkunar á flutningskostnaði á landsbyggðinni í fjárlögum ársins 2008 voru ekki nýttar til þess?