Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 58. máls.
137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 60  —  58. mál.




Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um verðmat Deloitte/Oliver Wyman á eignasöfnum nýju bankanna.

Frá Eygló Harðardóttur.



     1.      Hvert er verðmat (verðbil) Deloitte/Oliver Wyman á fasteignalánum bankanna til heimila sem hlutfall af höfuðstól?
     2.      Hvert er verðmat (verðbil) Deloitte/Oliver Wyman á lánum til fyrirtækja sem hlutfall af höfuðstól?
     3.      Hvernig hefur verðmat á eignum bankanna breyst síðan í október 2008? Hefur það lækkað og þá hversu mikið?


Skriflegt svar óskast.