Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 60. máls.
137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 65  —  60. mál.




Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um bílalán í erlendri mynt.

Frá Birki Jóni Jónssyni.



     1.      Hversu margir einstaklingar eru með erlend lán þar sem bifreið viðkomandi er sett að veði?
     2.      Hversu há eru þessi lán?
     3.      Hversu mikil verðmæti liggja í hinum veðsettu bifreiðum?
     4.      Hyggst ráðherra grípa til aðgerða til að aðstoða þá einstaklinga sem skulda bílalán í erlendri mynt?