Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 159. máls.
137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 280  —  159. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um vegamál og sjóvarnargarð við Vík í Mýrdal.

Frá Sigurði Inga Jóhannssyni.



     1.      Hver er stefna ráðherra varðandi nýjan veg um Mýrdal? Hvernig líst ráðherra á hugmyndir heimamanna um göng í gegnum Reynisfjall og nýjan veg sunnan byggðarinnar sem styrki uppbyggingu sjóvarnargarðs?
     2.      Hver er staða uppbyggingar sjóvarnargarðs við Vík? Óskað er eftir upplýsingum um fjárframlög til verkefnisins og áætlunum um verktíma.


Skriflegt svar óskast.