Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 60. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 60  —  60. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um fjölda starfa hjá ríkinu.

Frá Unni Brá Konráðsdóttur.



    Hver hefur verið fjöldi starfa hjá ríkinu, þ.e. þar sem Fjársýsla ríkisins er launagreiðandi, ár hvert frá 2005 í hverju skattumdæmi fyrir sig, sundurliðað í:
     a.      störf innan menntakerfis,
     b.      störf í löggæslu,
     c.      störf innan heilbrigðiskerfis,
     d.      störf við stjórnsýslu, og
     e.      önnur störf?


Skriflegt svar óskast.