Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 98. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 100  —  98. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um staðfestingu aðalskipulags Skeiða- og Gnúpverjahrepps.

Frá Unni Brá Konráðsdóttur.



     1.      Hvað líður afgreiðslu ráðherra á staðfestingu aðalskipulags Skeiða- og Gnúpverjahrepps?
     2.      Hvernig telur ráðherra meðferð málsins hjá ráðuneytinu samræmast góðum stjórnsýsluháttum?