Þskj. 129 — 116. mál.
Frumvarp til laga
um heilbrigðisstarfsmenn.
(Lagt fyrir Alþingi á 138. löggjafarþingi 2009–2010.)
I. KAFLI
Almenn ákvæði.
1. gr.
Markmið og gildissvið.
Um réttindi og skyldur heilbrigðisstarfsmanna og annarra starfsmanna í heilbrigðisþjónustu gilda lög þessi, lög um réttindi sjúklinga, lög um landlækni, lög um sjúkraskrár og önnur lög eftir því sem við á.
2. gr.
Skilgreiningar.
1. Heilbrigðisstarfsmaður: Einstaklingur sem starfar við heilbrigðisþjónustu og hefur hlotið leyfi landlæknis til að nota starfsheiti löggiltrar heilbrigðisstéttar.
2. Löggilt heilbrigðisstétt: Heilbrigðisstétt sem öðlast hefur löggildingu samkvæmt sérlögum sem í gildi voru við gildistöku laga þessara og reglugerðum sem settar voru með stoð í lögum um starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta, nr. 24/1985, og samkvæmt ákvæðum 3. gr. laga þessara.
3. Heilbrigðisstofnun: Stofnun þar sem heilbrigðisþjónusta er veitt.
4. Heilbrigðisþjónusta: Hvers kyns heilsugæsla, lækningar, hjúkrun, almenn og sérhæfð sjúkrahúsþjónusta, sjúkraflutningar, hjálpartækjaþjónusta og þjónusta heilbrigðisstarfsmanna innan og utan heilbrigðisstofnana sem veitt er í því skyni að efla heilbrigði, fyrirbyggja, greina eða meðhöndla sjúkdóma og endurhæfa sjúklinga.
5. Sjúklingur: Notandi heilbrigðisþjónustu.
6. Meðferð: Rannsókn, aðgerð eða önnur heilbrigðisþjónusta sem læknir eða annar heilbrigðisstarfsmaður veitir til að greina, lækna, endurhæfa, hjúkra eða annast sjúkling.
II. KAFLI
Löggiltar heilbrigðisstéttir.
3. gr.
Tilgreining löggiltra heilbrigðisstétta.
1. Áfengis- og vímuvarnaráðgjafar.
2. Félagsráðgjafar.
3. Fótaaðgerðafræðingar.
4. Geislafræðingar.
5. Hjúkrunarfræðingar.
6. Hnykkjar (kírópraktorar).
7. Iðjuþjálfar.
8. Lífeindafræðingar.
9. Ljósmæður.
10. Lyfjafræðingar.
11. Lyfjatæknar.
12. Læknar.
13. Læknaritarar.
14. Matartæknar.
15. Matvælafræðingar.
16. Náttúrufræðingar í heilbrigðisþjónustu.
17. Næringarfræðingar.
18. Næringarráðgjafar.
19. Næringarrekstrarfræðingar.
20. Osteópatar.
21. Sálfræðingar.
22. Sjóntækjafræðingar.
23. Sjúkraflutningamenn.
24. Sjúkraliðar.
25. Sjúkranuddarar.
26. Sjúkraþjálfarar.
27. Stoðtækjafræðingar.
28. Talmeinafræðingar.
29. Tannfræðingar.
30. Tannlæknar.
31. Tannsmiðir.
32. Tanntæknar.
33. Þroskaþjálfar.
4. gr.
Réttur til að nota starfsheiti löggiltrar heilbrigðisstéttar.
5. gr.
Skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis.
Við setningu reglugerða skv. 1. mgr. skal gætt skuldbindinga sem íslenska ríkið hefur tekið á sig um staðfestingu starfsleyfa og gagnkvæma viðurkenningu á prófskírteinum vegna aðildar að Evrópska efnahagssvæðinu, stofnsamningi Fríverslunarsamtaka Evrópu eða á grundvelli annarra gagnkvæmra samninga, sbr. 29. gr.
Kveðið skal á um skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis til umsækjenda frá ríkjum sem íslenska ríkið hefur ekki samið við um gagnkvæma viðurkenningu prófskírteina með reglugerð. Þar skal m.a. kveðið á um gögn sem leggja ber fram, svo sem um nám og fyrirhuguð störf hér á landi, áður en umsókn er tekin til meðferðar. Hafi ekki verið sýnt fram á að nám uppfylli kröfur sem gerðar eru í reglugerð um viðkomandi heilbrigðisstétt er heimilt að setja í reglugerð skilyrði um að umsækjandi frá þeim ríkjum gangist undir hæfnispróf sem sýni fram á að hann búi yfir kunnáttu sem krafist er af heilbrigðisstarfsmönnum í viðkomandi heilbrigðisstétt. Auk þess er heimilt að gera kröfu um að umsækjandi búi yfir kunnáttu í íslensku og hafi þekkingu á íslenskri heilbrigðislöggjöf eftir því sem við á hverju sinni, enda sé slík kunnátta talin nauðsynleg í starfi og þá einkum vegna öryggis og samskipta við sjúklinga.
Ekki skal veita umsækjanda starfsleyfi ef fyrir hendi eru skilyrði til sviptingar starfsleyfis samkvæmt lögum um landlækni.
Heimilt er að taka gjald fyrir hæfnispróf sem lagt er fyrir umsækjanda um starfsleyfi. Gjaldið skal standa undir kostnaði við undirbúning og framkvæmd hæfnisprófs.
6. gr.
Veiting starfsleyfis.
Landlækni er heimilt að veita umsækjendum frá ríkjum sem ekki hafa samið við íslenska ríkið um gagnkvæma viðurkenningu prófskírteina starfsleyfi að uppfylltum skilyrðum laga þessara og reglugerða settra samkvæmt þeim.
Synjun landlæknis um veitingu starfsleyfis er kæranleg til ráðherra samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga.
7. gr.
Réttur til að kalla sig sérfræðing.
8. gr.
Skilyrði fyrir veitingu sérfræðileyfis.
Í reglugerð um veitingu sérfræðileyfis skal kveðið á um þau skilyrði sem uppfylla þarf til að hljóta leyfi til að kalla sig sérfræðing innan löggiltrar heilbrigðisstéttar og starfa sem slíkur hér á landi. Miðað skal við að lokið hafi verið formlegu viðbótarnámi á viðkomandi sérfræðisviði. Í reglugerð skal m.a. kveðið á um það sérfræðinám sem krafist er til að hljóta sérfræðileyfi og um starfsþjálfun, sé gerð krafa um hana. Enn fremur skal kveðið á um í hvaða tilvikum skuli leitað umsagnar menntastofnunar eða annarra aðila um það hvort umsækjandi uppfylli skilyrði um sérfræðinám.
Við setningu reglugerða skv. 1. mgr. skal gætt skuldbindinga sem íslenska ríkið hefur tekið á sig vegna aðildar að Evrópska efnahagssvæðinu, stofnsamningi Fríverslunarsamtaka Evrópu eða á grundvelli annarra gagnkvæmra samninga, sbr. 29. gr.
9. gr.
Veiting sérfræðileyfis.
Synjun landlæknis um veitingu sérfræðileyfis er kæranleg til ráðherra samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga.
10. gr.
Óheimil notkun starfsheitis.
11. gr.
Tímabundið starfsleyfi.
Landlækni er heimilt að gefa út tímabundið starfsleyfi til heilbrigðisstarfsmanna með erlent nám eða próf, sem er viðurkennt samkvæmt samningum sbr. 29. gr. en uppfyllir ekki kröfur hér á landi.
Landlækni er enn fremur heimilt að gefa út tímabundið starfsleyfi til heilbrigðisstarfsmanna með erlent próf eða nám frá ríki þar sem ekki er í gildi samningur um gagnkvæma viðurkenningu prófskírteina.
Handhafi tímabundins starfsleyfis skal starfa undir stjórn og eftirliti heilbrigðisstarfsmanns sem hefur ótímabundið starfsleyfi í viðkomandi grein heilbrigðisfræða.
Víkja má frá ákvæði 4. mgr. telji landlæknir sérstakar ástæður mæla með því.
Nánari reglur um framkvæmd þessa ákvæðis skal setja með reglugerð.
12. gr.
Svipting og endurveiting starfsleyfis.
III. KAFLI
Réttindi og skyldur heilbrigðisstarfsmanna.
13. gr.
Faglegar kröfur.
Heilbrigðisstarfsmanni ber að þekkja skyldur sínar, viðhalda þekkingu sinni og faglegri færni, tileinka sér nýjungar er varða starfið og kynna sér lög og reglugerðir sem gilda um heilbrigðisstarfsmenn og heilbrigðisþjónustu á hverjum tíma.
Heilbrigðisstarfsmaður ber, eftir því sem við á, ábyrgð á greiningu og meðferð sjúklinga sem til hans leita. Um upplýsingaskyldu heilbrigðisstarfsmanns gagnvart sjúklingi fer samkvæmt ákvæðum laga um réttindi sjúklinga.
Heilbrigðisstarfsmaður skal virða faglegar takmarkanir sínar og vísa sjúklingi til annars heilbrigðisstarfsmanns ef ætla má að hann sé hæfari til að veita honum viðeigandi heilbrigðisþjónustu.
Ráðherra er heimilt að kveða á um endurmenntun heilbrigðisstarfsmanna í reglugerð.
14. gr.
Undanþága frá starfsskyldu.
15. gr.
Áfengi og vímuefni.
Heilbrigðisstofnunum er heimilt að höfðu samráði við landlækni að setja reglur um bann við notkun heilbrigðisstarfsmanna á áfengi eða öðrum vímuefnum tiltekinn tíma áður en vinna þeirra hefst.
16. gr.
Aðstoðarmenn og nemar.
Ráðherra getur, að fenginni umsögn landlæknis, sett nánari reglur um framkvæmd þessa ákvæðis með reglugerð.
17. gr.
Trúnaður og þagnarskylda.
Samþykki sjúklings eða forráðamanns, ef við á, leysir heilbrigðisstarfsmann undan þagnarskyldu.
Þagnarskylda samkvæmt þessari grein nær ekki til atvika sem heilbrigðisstarfsmanni ber að tilkynna um samkvæmt öðrum lagaákvæðum. Í þeim tilvikum ber heilbrigðisstarfsmanni skylda til að koma upplýsingum um atvikið á framfæri við þar til bær yfirvöld.
Um trúnaðar- og þagnarskyldu heilbrigðisstarfsmanna gilda jafnframt ákvæði laga um réttindi sjúklinga, ákvæði laga um sjúkraskrár og önnur lög eftir því sem við á.
18. gr.
Upplýsinga- og vitnaskylda.
Heilbrigðisstarfsmönnum og öðrum starfsmönnum heilbrigðisþjónustunnar er skylt að veita ráðuneyti nauðsynlegar upplýsingar vegna meðferðar og úrlausnar stjórnsýslumála. Ákvæði 17. gr. um trúnaðar- og þagnarskyldu takmarka ekki upplýsingaskyldu heilbrigðisstarfsmanna og annarra starfsmanna heilbrigðisþjónustunnar samkvæmt ákvæði þessu.
Heilbrigðisstarfsmaður verður ekki leiddur fram sem vitni í einkamálum gegn vilja sjúklings nema ætla megi að úrslit málsins velti á vitnisburði hans eða málið sé mikilvægt fyrir málsaðila eða þjóðfélagið, hvort tveggja að mati dómara. Í slíkum tilvikum ber heilbrigðisstarfsmanni að skýra frá öllu sem hann veit og telur að hugsanlega geti haft áhrif á málið. Slíkur vitnisburður skal fara fram fyrir luktum dyrum.
Um skyldu heilbrigðisstarfsmanna til samstarfs og upplýsingagjafar til barnaverndaryfirvalda fer samkvæmt ákvæðum barnaverndarlaga.
19. gr.
Vottorð, álitsgerðir, faglegar yfirlýsingar og skýrslur.
Heilbrigðisstarfsmönnum er skylt að láta hinu opinbera í té vottorð um sjúklinga er þeir annast þegar slíkra vottorða er krafist vegna samskipta sjúklings við hið opinbera.
Ráðherra er heimilt í reglugerð að setja nánari reglur um útgáfu vottorða, faglegra yfirlýsinga og skýrslna.
20. gr.
Um lyfjaávísanir og lyfjakaup.
21. gr.
Sjúkraskrár.
22. gr.
Skylda til að veita hjálp.
23. gr.
Hófsemi.
24. gr.
Kynning og auglýsingar.
Ráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um kynningu og auglýsingar heilbrigðisþjónustu, svo sem bann við ákveðinni aðferð við kynningu eða auglýsingar.
25. gr.
Um sjúklingatryggingar.
IV. KAFLI
Ýmis ákvæði.
26. gr.
Aldursmörk.
27. gr.
Um meðferðar- eða rannsóknaraðferðir o.fl.
a. að tilgreindum rannsóknar- eða meðferðaraðferðum skuli aðeins beitt af heilbrigðisstarfsmönnum eða nánar tilgreindum heilbrigðisstéttum,
b. að tiltekinni meðferðar- eða rannsóknaraðferð skuli aðeins beitt af þeim heilbrigðisstarfsmönnum sem til þess hafa fengið sérstakt leyfi landlæknis,
c. bann við notkun tiltekinna meðferðar- og rannsóknaraðferða.
Reglugerðir um takmarkanir skv. 1. mgr. skulu byggðar á hagsmunum sjúklinga og skulu þær settar að fengnum tillögum landlæknis og umsögn fagfélags viðkomandi löggiltrar heilbrigðisstéttar.
28. gr.
Refsingar.
Með brot gegn lögum þessum skal farið samkvæmt lögum um meðferð sakamála.
29. gr.
Alþjóðlegir samningar.
Ráðherra getur sett nánari ákvæði um skilyrði sem uppfylla þarf til að öðlast starfsleyfi á grundvelli alþjóðlegra samninga með reglugerð.
30. gr.
Reglugerðarheimild.
31. gr.
Gildistaka.
32. gr.
Brottfall laga.
1. Læknalög, nr. 53/1988.
2. Lög um tannlækningar, nr. 38/1985.
3. Hjúkrunarlög, nr. 8/1974.
4. Lög um félagsráðgjöf, nr. 95/1990.
5. Lög um iðjuþjálfun, nr. 75/1977.
6. Ljósmæðralög, nr. 67/1984.
7. Lög um lyfjafræðinga, nr. 35/1978.
8. Lög um lífeindafræðinga, nr. 99/1980.
9. Lög um sjóntækjafræðinga, nr. 17/1984.
10. Lög um sjúkraliða, nr. 58/1984.
11. Lög um sjúkraþjálfun, nr. 58/1976.
12. Lög um þroskaþjálfa, nr. 18/1978.
13. Lög um starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta, nr. 24/1985.
14. Lög um sálfræðinga, nr. 40/1976.
15. Lög um starfsréttindi tannsmiða, nr. 109/2000.
33. gr.
Breytingar á öðrum lögum.
1. Í stað orðsins „læknalaga“ í 3. mgr. 13. gr. laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997, kemur: laga um heilbrigðisstarfsmenn.
2. Í stað orðanna „skv. 19. gr. læknalaga“ í d-lið 4. mgr. 27. gr. lyfjalaga, nr. 93/1994, kemur: skv. 18. gr. laga um landlækni.
3. Í stað orðsins „læknalaga“ í 5. gr. laga um græðara, nr. 34/2005, kemur: laga um heilbrigðisstarfsmenn.
4. Orðið „læknalögum“ í 3. mgr. 7. gr. laga um gagnagrunn á heilbrigðissviði, nr. 139/1998, fellur brott.
5. Í stað orðanna „lög um lyfjafræðinga“ í 1. tölul. 2. mgr. 20. gr. og orðanna „V. kafla laga um lyfjafræðinga, nr. 35/1978“ í 2. mgr. 22. gr. lyfjalaga, nr. 93/1994, kemur: lög um heilbrigðisstarfsmenn; og: lögum um heilbrigðisstarfsmenn.
Ákvæði til bráðabirgða.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Inngangur.
Frumvarp þetta var lagt fram á 137. löggjafarþingi, en hlaut ekki afgreiðslu. Heilbrigðisráðuneytið hefur farið yfir frumvarpið m.a. með tilliti til umsagna sem bárust heilbrigðisnefnd Alþingis. Efnisbreytingar frá fyrra frumvarpi eru mjög litlar og felast einkum í því að gert er ráð fyrir að tannsmiðir bætist í hóp heilbrigðisstétta, sett eru skýrari ákvæði um veitingu starfsleyfa til umsækjenda frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins, lagt er til að áfram verði heimilt að veita nemum tímabundið starfsleyfi ef nauðsyn krefur og ákvæði fyrra frumvarps um kynningu og auglýsingar heilbrigðisþjónustu er gert skýrara og kveðið á um heimild til að banna tilteknar aðferðir með reglugerð.
Um alllangt skeið hefur verið unnið að því í heilbrigðisráðuneytinu að semja rammalöggjöf um heilbrigðisstarfsmenn og hefur ráðuneytið þrisvar sinnum sent drög að frumvarpi til umsagnar, síðast í desember 2008, en þá voru drög að frumvarpi m.a. send til fagfélaga heilbrigðisstétta, Lyfjastofnunar, landlæknisembættisins, menntastofnana og heilbrigðisstofnana og bárust alls 25 umsagnir.
Löggiltar heilbrigðisstéttir eru nú 33 talsins. Sérlög gilda um 14 heilbrigðisstéttir en 19 stéttir hafa verið löggiltar með reglugerðum, sem settar eru með stoð í lögum nr. 24/1985, um starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta.
Gildandi laga- og reglugerðaákvæði um heilbrigðisstéttir eru að ýmsu leyti úrelt og gætir talsverðs ósamræmis, t.d. varðandi það hvaða heilbrigðisstéttir geta starfað sjálfstætt og hverjar starfa á ábyrgð annarrar heilbrigðisstéttar, hvaða heilbrigðisstéttir mega hafa aðstoðarmenn og hverjar ekki, hvaða heilbrigðisstéttir þurfa að halda skýrslur um störf sín og hverjar ekki.
Megintilgangurinn með rammalöggjöf um réttindi og skyldur heilbrigðisstarfsmanna er að samræma og einfalda gildandi ákvæði um heilbrigðisstarfsmenn, tryggja gæði heilbrigðisþjónustu og öryggi sjúklinga með því að skilgreina kröfur til heilbrigðisstarfsmanna. Ákvæði um heilbrigðisstarfsmenn eru gerð markvissari og hnitmiðaðri en áður, felldar brott ónauðsynlegar takmarkanir á starfssviði heilbrigðisstétta og þau færð til nútímahorfs þannig að heilbrigðisþjónustan og störf og starfssvið heilbrigðisstétta geti þróast með eðlilegum hætti innan ramma löggjafar. Verði frumvarpið að lögum verða nýjar heilbrigðisstéttir framvegis ekki löggiltar nema með breytingu á lögunum.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að ráðherra geti með reglugerðum kveðið á um ýmis atriði sem eru þess eðlis að betur fer á að þau séu ákveðin í stjórnvaldsfyrirmælum. Má m.a. nefna:
a. Hvaða skilyrði um nám og eftir atvikum starfsreynslu þarf að uppfylla til að eiga rétt á leyfi til að starfa innan viðkomandi löggiltrar heilbrigðisstéttar og kalla sig starfsheiti stéttarinnar.
b. Starfssvið heilbrigðisstétta og afmörkun þess.
c. Hvaða reglur gildi um hverja heilbrigðisstétt varðandi viðhaldsmenntun, umsagnaraðila um veitingu starfsleyfis o.fl.
d. Skilyrði fyrir löggildingu sérfræðigreina og veitingu leyfis til að kalla sig sérfræðing.
Við gerð slíkra reglugerða er gert ráð fyrir að haft verði samráð við aðila eins og landlækni, fagfélög, menntastofnanir og eftir atvikum aðra sem málið kann að varða.
Frumvarp þetta byggist að stofni til á ákvæðum læknalaga, nr. 53/1988, eins og fram kemur í athugasemdum við einstakar greinar, enda er tilvísun til læknalaga í flestum lögum og reglugerðum um heilbrigðisstéttir. Ýmis ákvæði læknalaga gilda því almennt um heilbrigðisstarfsmenn og má því segja að þau séu að vissu marki grundvallarlög um heilbrigðisstéttir. Við undirbúning frumvarps þessa hefur einnig verið höfð hliðsjón af sambærilegum norskum lögum.
Með lögum um landlækni voru stigin skref til samræmingar og ákvæði flutt úr læknalögum. Með lögum nr. 12/2008, um breytingu á ýmsum lögum vegna flutnings á útgáfu starfsleyfa til landlæknis, sem gengu í gildi 1. apríl sama ár, var útgáfa starfsleyfa flutt frá heilbrigðisráðuneyti til landlæknis. Helstu rökin fyrir flutningi starfsleyfa heilbrigðisstétta voru þau að um er að ræða stjórnsýslu sem telja verður að eigi frekar heima á verksviði stofnunar en ráðuneytis. Þá felst aukið réttaröryggi í því að umsækjendur um starfsleyfi geta kært niðurstöðu landlæknis til ráðuneytisins.
Helstu breytingar og nýmæli sem felast í frumvarpinu eru eftirfarandi:
1. Ein samræmd rammalög um heilbrigðisstarfsmenn í stað 13 sérlaga og laga um starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta.
2. Heimild til að löggilda nýjar heilbrigðisstéttir með reglugerð fellur brott.
3. Starfssvið heilbrigðisstétta verði ákveðið á grundvelli þekkingar og hæfni með tilliti til hagsmuna sjúklinga og úrelt ákvæði um takmarkanir á starfsréttindum felld brott.
4. Kveðið á um að heilbrigðisstarfsmaður skuli virða faglegar takmarkanir sínar og vísa sjúklingi til annars heilbrigðisstarfsmanns þegar við á.
5. Undirstrikað að óheimilt sé að starfa undir áhrifum áfengis eða vímuefna og heilbrigðisstofnunum heimilað að setja reglur um bann við notkun áfengis og vímuefna í tiltekinn tíma áður en vinna hefst.
6. Heilbrigðisstarfsmenn skulu sjá til þess að aðstoðarmenn þeirra hafi næga hæfni og þekkingu og fái nauðsynlegar leiðbeiningar til að sinna störfum sem þeir fela þeim.
7. Kveðið er á um að heilbrigðisstarfsmenn skuli gæta þess að sjúklingar, sjúkratryggingar eða aðrir verði ekki fyrir óþarfa útgjöldum eða óþægindum.
8. Í stað núgildandi ákvæða um auglýsingar kemur ákvæði um þær kröfur sem gera skal til kynningar heilbrigðisþjónustu og auglýsingar og heimild til takmörkunar í reglugerð.
9. Ákvæði um hámarksaldur þeirra sem heimilt er að reka eigin starfsstofu er lækkaður úr 75 í 70 ár. Heimild landlæknis til að framlengja leyfi er takmarkað við 76 ára aldur.
10. Ráðherra er heimilað að ákveða með reglugerð að tilgreindri meðferð sé aðeins beitt af heilbrigðisstarfsmönnum, nánar tilgreindum heilbrigðisstéttum eða þeim sem fengið hafa til þess sérstakt leyfi landlæknis. Jafnframt verði heimilt að banna tiltekna meðferð. Reglugerðir um slíkar takmarkanir skulu settar að fengnum tillögum landlæknis og umsögn viðkomandi fagfélags.
Ákvæði gildandi laga og reglugerða um heilbrigðisstéttir.
Heilbrigðisstéttir sem um gilda sérlög eru 14 talsins. Þessar heilbrigðisstéttir eru:
1. Læknar. Um lækna gilda læknalög, nr. 53/1988, með síðari breytingum. Samkvæmt læknalögum hefur sá einn rétt til að stunda lækningar og kalla sig lækni sem uppfyllir skilyrði laganna fyrir læknaleyfi, sbr. 1. gr. laganna, og er öðrum óheimilt að nota starfsheiti eða kynningarheiti sem til þess eru fallin að gefa hugmyndir um að þeir séu læknar eða stundi lækningar, sbr. 6. gr. laganna. Í lögunum eru ítarleg ákvæði um skyldur, sbr. III. kafla þeirra. Þar kemur og fram að læknar geta við störf sín notið aðstoðar annars heilbrigðisstarfsfólks að svo miklu leyti sem slíkt er nauðsynlegt og forsvaranlegt vegna hæfni þess og sérkunnáttu. Aðstoðarmenn starfa á ábyrgð lækna nema önnur lög bjóði annað, sbr. 7. gr. laganna. Um veitingu lækningaleyfa og sérfræðileyfa gildir reglugerð nr. 305/1997, með síðari breytingum.
2. Tannlæknar. Um tannlækna gilda lög um tannlækningar, nr. 38/1985, með síðari breytingum. Skv. 1. gr. laganna hafa eingöngu þeir sem uppfylla skilyrði laganna um leyfi heimild til að stunda tannlækningar og kalla sig tannlækni. Verksvið tannlækna skv. 6. gr. laganna tekur til varna, greiningar og meðferðar á tannskemmdum, tannskekkju og tannleysi, til sjúkdóma, slysa og galla er þessu tengjast, þar með talið í mjúkvefjum og beinum. Tannlæknum er heimilt að hafa aðstoðarfólk, sbr. 8. gr. laganna, og starfar það ávallt undir handleiðslu og á ábyrgð tannlæknisins, sbr. 9. gr. Öðrum en tannlæknum og sérhæfðu aðstoðarfólki undir þeirra stjórn er óheimilt að stunda tannlækningar, sbr. 2. mgr. 9. gr. laganna. Tannlæknar skulu færa sjúkraskrá yfir sjúklinga sem þeir annast, sbr. 14. gr. laganna. Um sérfræðileyfi tannlækna gildir reglugerð nr. 545/2007. Um ávísanir tannlækna á lyf gildir reglugerð nr. 1077/2006.
3. Hjúkrunarfræðingar. Um hjúkrunarfræðinga gilda hjúkrunarlög, nr. 8/1974, með síðari breytingum. Rétt til að stunda hjúkrun og kalla sig hjúkrunarfræðing hafa þeir sem fengið hafa leyfi, sbr. 1. gr. laganna. Ekki má ráða aðra en hjúkrunarfræðinga til sjálfstæðra hjúkrunarstarfa við sjúkrastofnanir, elliheimili, heilsuvernd eða hjúkrun í heimahúsum, sbr. 4. gr. laganna. Um veitingu sérfræðileyfa í hjúkrun gildir reglugerð nr. 124/2003.
4. Félagsráðgjafar. Um félagsráðgjafa gilda lög um félagsráðgjöf, nr. 95/1990, með síðari breytingum. Rétt til að kalla sig félagsráðgjafa hefur sá einn sem hefur til þess leyfi, sbr. 1. gr. laganna. Óheimilt er að ráða til félagsráðgjafastarfa aðra en þá sem hafa starfsleyfi, sbr. 5. gr. laganna. Í 7. gr. laganna er tekið fram að félagsráðgjafar bera ábyrgð á starfi sínu. Um sérfræðileyfi í félagsráðgjöf gildir reglugerð nr. 555/1999.
5. Iðjuþjálfar. Um iðjuþjálfa gilda lög um iðjuþjálfun, nr. 75/1977. Rétt til að starfa sem iðjuþjálfi og kalla sig iðjuþjálfa hefur sá einn, sem til þess hefur fengið leyfi, sbr. 1. gr. laganna. Iðjuþjálfi starfar við hæfingu og endurhæfingu sjúkra og heilbrigðra sem fólgin er í þjálfun, fræðslu og kennslu, sbr. 4. gr. laganna. Iðjuþjálfi má ekki taka sjúkling til meðferðar án samráðs við lækni, sbr. 5. gr. laganna. Óheimilt er að ráða til hvers konar iðjuþjálfastarfa aðra en þá sem hafa starfsleyfi, sbr. 6. gr. Iðjuþjálfa er heimilt að hafa sér til aðstoðar fólk sem ávallt skal starfa á ábyrgð og undir handleiðslu hans, sbr. 7. gr. laganna.
6. Ljósmæður. Um ljósmæður gilda ljósmæðralög, nr. 67/1984, með síðari breytingum. Rétt til að kalla sig ljósmóður og stunda ljósmóðurstörf hefur sá einn sem hefur fengið leyfi, sbr. 1. gr. laganna. Ljósmæður annast eftirlit með barnshafandi konum og foreldrafræðslu um meðgöngu og fæðingu. Þær starfa að fæðingarhjálp og mæðravernd, sbr. 4. gr. laganna. Óheimilt er að ráða til ljósmóðurstarfa aðra en þá sem hafa starfsleyfi, sbr. 5. gr. laganna.
7. Lyfjafræðingar. Um lyfjafræðinga gilda lög um lyfjafræðinga, nr. 35/1978. Rétt til að kalla sig lyfjafræðing og starfa sem slíkur hefur sá einn sem fengið hefur leyfi, sbr. 1. gr. laganna. Um veitingu sérfræðileyfa handa lyfjafræðingum gildir reglugerð nr. 449/1978.
8. Aðstoðarlyfjafræðingar. Um aðstoðarlyfjafræðinga gilda lög um lyfjafræðinga, nr. 35/1978. Rétt til að kalla sig aðstoðarlyfjafræðing og starfa sem slíkur hefur sá einn sem hefur fengið til þess leyfi, sbr. 4. gr. laganna. Háskóli Íslands býður ekki lengur upp á nám sem lýkur með aðstoðarlyfjafræðingsprófi.
9. Lífeindafræðingar. Um lífeindafræðinga gilda lög um lífeindafræðinga, nr. 99/1980, með síðari breytingum, en heilbrigðisstéttin hét áður meinatæknar. Rétt til að starfa sem lífeindafræðingur og kalla sig lífeindafræðing hefur sá einn sem fengið hefur leyfi, sbr. 1. gr. laganna. Óheimilt er að ráða sem lífeindafræðing aðra en þá sem hafa starfsleyfi, sbr. 4. gr. laganna. Um veitingu sérfræðileyfa í lífeindafræði gildir reglugerð nr. 232/2007.
10. Sálfræðingar. Um sálfræðinga gilda lög um sálfræðinga, nr. 40/1976, með síðari breytingum. Rétt til að kalla sig sálfræðing hefur sá einn sem hlotið hefur til þess leyfi, sbr. 1. gr. laganna. Öðrum er óheimilt að nota starfsheiti sem er til þess fallið að gefa í skyn að þeir hafi hlotið löggildingu sem sálfræðingar, sbr. 1. gr. laganna. Um sérfræðileyfi sálfræðinga gildir reglugerð nr. 158/1990.
11. Sjóntækjafræðingar. Um sjóntækjafræðinga gilda lög um sjóntækjafræðinga, nr. 17/1984, með síðari breytingum. Rétt til að kalla sig sjóntækjafræðing og starfa sem slíkur hefur sá einn sem fengið hefur leyfi, sbr. 1. gr. laganna. Sjóntækjafræðingar mæla sjón og fullvinna og selja sjónhjálpartæki (gleraugu og snertilinsur). Óheimilt er að ráða til hvers konar sjóntækjafræðistarfa aðra en þá sem hafa starfsleyfi samkvæmt lögunum, sbr. 6. gr. laganna. Sett hefur verið reglugerð nr. 1043/2004, um menntun sjóntækjafræðinga og takmarkanir á heimild þeirra til sjónmælinga hjá tilgreindum hópum.
12. Sjúkraliðar. Um sjúkraliða gilda lög um sjúkraliða, nr. 58/1984, með síðari breytingum. Rétt til að starfa sem sjúkraliði og kalla sig sjúkraliða hefur sá einn sem fengið hefur leyfi, sbr. 1. gr. laganna. Óheimilt er að ráða til sjúkraliðastarfa aðra en þá sem hafa starfsleyfi, sbr. 3. gr. laganna. Sjúkraliði starfar á hjúkrunarsviði og vinnur undir stjórn þess hjúkrunarfræðings sem fer með stjórn viðkomandi stofnunar, deildar eða hjúkrunareiningar og ber ábyrgð á störfum sínum gagnvart honum, sbr. 1. mgr. 5. gr. laganna. Þó getur sjúkraliði borið ábyrgð á störfum sínum gagnvart öðrum sérfræðingi sem hlotið hefur viðurkenningu enda hafi hjúkrunarfræðingur ekki fengist til starfa. Slík skipan má þó ekki standa lengur en í eitt ár, sbr. 2. mgr. 5. gr. laganna. Sett hefur verið reglugerð um menntun, réttindi og skyldur sjúkraliða, nr. 897/2001.
13. Sjúkraþjálfarar. Um sjúkraþjálfara gilda lög nr. 58/1976, um sjúkraþjálfun, með síðari breytingum. Rétt til að starfa sem sjúkraþjálfari og kalla sig sjúkraþjálfara hefur sá einn sem hefur fengið leyfi, sbr. 1. gr. laganna. Sjúkraþjálfari starfar við hæfingu og endurhæfingu sjúkra og heilbrigðra sem fólgin er í þjálfun, fræðslu og kennslu, sbr. 4. gr. laganna. Sjúkraþjálfari má ekki taka sjúkling til meðferðar án samráðs við lækni, sbr. 5. gr. laganna. Óheimilt er að ráða til hvers konar sjúkraþjálfarastarfa aðra en þá sem hafa starfsleyfi, sbr. 6. gr. laganna. Sjúkraþjálfara er heimilt að hafa sér til aðstoðar fólk sem ávallt skal starfa á ábyrgð og undir handleiðslu hans, sbr. 7. gr. laganna. Sett hefur verið reglugerð, nr. 145/2003, um veitingu sérfræðileyfa í sjúkraþjálfun.
14. Þroskaþjálfar. Um þroskaþjálfa gilda lög um þroskaþjálfa, nr. 18/1978. Rétt til að starfa sem þroskaþjálfi og kalla sig þroskaþjálfa hefur sá einn sem hefur fengið leyfi landlæknis, sbr. 1. gr. laganna. Þroskaþjálfar starfa við þjálfun, uppeldi og umönnun þroskaheftra, sbr. 3. gr. laganna og óheimilt er að ráða til þroskaþjálfastarfa aðra en þá sem hafa starfsleyfi, sbr. 4. gr. laganna. Sett hefur verið reglugerð um störf, starfsvettvang og starfshætti þroskaþjálfa, nr. 215/1987.
15. Tannsmiðir. Tannsmíði er löggilt iðngrein og um tannsmiði gilda lög um starfsréttindi tannsmiða, nr. 109/2000, reglugerð nr. 904/2000, um starfsréttindi tannsmiða, og reglur nr. 937/2000, um takmörkun á starfsréttindum tannsmiða. Tannsmiðir með meistararéttindi geta á eigin ábyrgð smíðað tanngóma og þá m.a. unnið að töku móta og mátun, enda séu ekki sjúklegar breytingar eða meðfæddir gallar í munni eða kjálka viðskiptavinar samkvæmt læknisvottorði, svo og gert við tanngóma og tannparta. Að smíði tannparta á eigin ábyrgð skulu þeir starfa í samvinnu við tannlækni.
Um aðrar löggiltar heilbrigðisstéttir gilda reglugerðir sem settar hafa verið með stoð í lögum nr. 24/1985, um starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta. Lögin leystu af hólmi eldri lög um tæknimenntaðar heilbrigðisstéttir, nr. 64/1971. Samkvæmt lögum um starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta hafa þeir einir rétt til að nota starfsheiti sem fellur undir lögin sem fengið hafa starfsleyfi landlæknis, sbr. 3. gr. laganna. Þær stéttir sem fallið geta undir lögin starfa við heilbrigðisstofnanir, kennslustofnanir heilbrigðisstétta eða matvælastofnanir. Þær starfa ýmist á eigin ábyrgð eða undir handleiðslu og á ábyrgð læknis eða annars sérfræðings á viðkomandi sviði, sbr. 4. gr. laganna. Lögin gera ráð fyrir að óheimilt sé að ráða til þeirra starfa sem undir lögin heyra aðra en þá sem hlotið hafa starfsleyfi landlæknis, sbr. 5. gr. laganna.
Á grundvelli laganna um starfsheiti og starfsheiti heilbrigðisstétta (og eldri laga um tæknimenntaðar heilbrigðisstéttir) hafa verið settar reglugerðir um 19 heilbrigðisstéttir. Flestar þessara reglugerða voru settar á árunum 1986–1991. Síðan varð langt hlé á því að nýjar heilbrigðisstéttir væru löggiltar. Á árinu 2005 og 2006 voru tvær nýjar heilbrigðisstéttir löggiltar, þ.e. osteópatar og áfengis- og vímuefnaráðgjafar, og árið 2007 fengu stoðtækjafræðingar löggildingu. Frá árinu 1991 hafa því einvörðungu þrjár nýjar heilbrigðisstéttir verið löggiltar.
Heilbrigðisstéttir löggiltar með sérstökum reglugerðum eru:
1. Lyfjatæknar. Um lyfjatækna gildir reglugerð um starfsréttindi og starfssvið lyfjatækna, nr. 199/1983. Starfssvið lyfjatækna eru störf við lyfjaafgreiðslu og lyfjagerð undir handleiðslu og á ábyrgð lyfjafræðings, sbr. 3. gr. reglugerðarinnar. Óheimilt er að ráða til lyfjatæknistarfa aðra en þá sem hafa starfsréttindi, sbr. 4. gr. reglugerðarinnar.
2. Geislafræðingar. Um geislafræðinga gildir reglugerð um geislafræðinga, nr. 185/2001. Geislafræðingur framkvæmir geislarannsóknir, geislameðferð og aðrar rannsóknir á fólki með myndgerðartækni samkvæmt fyrirmælum og í samráði við lækni, sbr. 4. gr. reglugerðarinnar. Óheimilt er að ráða til geislafræðingsstarfa aðra en geislafræðinga og röntgenhjúkrunarfræðinga, sbr. 3. gr. reglugerðarinnar og ákvæði til bráðabirgða. Geislafræðingar hétu áður röntgentæknar.
3. Sjúkraflutningamenn. Um sjúkraflutningamenn gildir reglugerð um menntun, réttindi og skyldur sjúkraflutningamanna, nr. 504/1986. Sjúkraflutningamenn stunda skipulagða sjúkraflutninga. Þeir starfa á eigin ábyrgð, sbr. 5. gr. reglugerðarinnar.
4. Næringarfræðingar. Um næringarfræðinga gildir nú reglugerð um starfsheiti og starfsréttindi næringarfræðinga, nr. 50/2007, sem leysti af hólmi eldri reglugerð frá árinu 1987. Næringarfræðingar starfa að næringarfræði við heilbrigðisstofnanir, kennslu-, rannsókna- og matvælastofnanir og víðar, sbr. 4. gr. reglugerðarinnar.
5. Næringarráðgjafar. Um næringarráðgjafa gildir nú reglugerð um starfsheiti og starfsréttindi næringarráðgjafa, nr. 51/2007, sem leysti af hólmi eldri reglugerð frá árinu 1987. Næringarráðgjafarstarfa að næringarráðgjöf á heilbrigðisstofnunum, kennslu-, rannsókna-, matvælastofnunum og víðar, sbr. 4. gr. reglugerðarinnar.
6. Læknaritarar. Um læknaritara gildir reglugerð um menntun, réttindi og skyldur læknaritara, nr. 161/1987. Starfsvettvangur læknaritara er á heilbrigðisstofnunum og stofnunum hins opinbera er fara með stjórnunarmál á heilbrigðissviði. Þeir annast ritun, skýrslugerð og umsjón með öllum gögnum er varða sjúklinga og meðferð þeirra svo og annarra aðila er til heilbrigðisstofnana leita, samkvæmt nánari fyrirmælum lækna og undir handleiðslu og ábyrgð þeirra, sbr. 3. gr. reglugerðarinnar.
7. Sjúkranuddarar. Um sjúkranuddara gildir reglugerð um menntun, réttindi og skyldur sjúkranuddara, nr. 204/1987. Starfsvettvangur sjúkranuddara er á heilbrigðisstofnunum og eigin stofum. Með sjúkranuddi er átt við nudd í lækningaskyni samkvæmt tilvísun og á ábyrgð læknis, sbr. 4. gr. reglugerðarinnar. Öðrum en sjúkranuddurum er óheimilt að starfa sem sjúkranuddarar, sbr. 5. gr. reglugerðarinnar. Sjúkranuddara er skylt að halda dagbók um þá er leita til hans og aðrar skýrslur í samræmi við fyrirmæli landlæknis, sbr. 8. gr. reglugerðarinnar.
8. Matvælafræðingar. Um matvælafræðinga gildir reglugerð um starfsheiti og starfsréttindi matvælafræðinga, nr. 432/1987. Matvælafræðingar skulu starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um matvæli og aðrar neysluvörur. Starfssvið matvælafræðinga er á heilbrigðisstofnunum, kennslustofnunum heilbrigðisstétta og matvælastofnunum. Matvælafræðingar starfa á eigin ábyrgð, sbr. 3. gr. reglugerðarinnar. Óheimilt er að ráða sem matvælafræðinga aðra en þá sem hafa starfsleyfi, sbr. 4. gr. reglugerðarinnar.
9. Talmeinafræðingar. Um talmeinafræðinga gildir reglugerð um menntun, réttindi og skyldur talmeinafræðinga, nr. 618/1987. Starfssvið talmeinafræðinga er við greiningu, meðhöndlun og rannsóknir talmeina. Starfsvettvangur talmeinafræðinga er á heilbrigðisstofnunum, í skólum og eigin stofum. Þeir starfa á eigin ábyrgð en þó eingöngu samkvæmt tilvísun og í samráði við lækni sé um að ræða meðferð í lækninga-, rannsókna- eða endurhæfingarskyni, sbr. 5. gr. reglugerðarinnar. Talmeinafræðingi er heimilt að hafa sér til aðstoðar fólk sem ávallt skal starfa á ábyrgð og undir handleiðslu hans, sbr. 7. gr. reglugerðarinnar. Óheimilt er að ráða sem talmeinafræðinga aðra en þá sem hafa starfsleyfi, sbr. 6. gr. reglugerðarinnar. Talmeinafræðingi er skylt að halda skýrslur um þá er leita til hans í samræmi við fyrirmæli landlæknis, sbr. 10. gr. reglugerðarinnar.
10. Tannfræðingar. Um tannfræðinga gildir reglugerð um menntun, réttindi og skyldur tannfræðinga, nr. 638/1987. Starfsvettvangur tannfræðinga er á heilbrigðisstofnunum, tannlæknastofum og uppeldis- og kennslustofnunum. Tannfræðingar starfa undir handleiðslu og á ábyrgð tannlækna. Tannfræðingar starfa að fræðslu, ráðgjöf, skipulagningu og framkvæmd tannverndar. Auk þess starfa tannfræðingar að þeim verklegu störfum sem tannlæknar fela þeim og þeir hafa hlotið menntun til, sbr. 3. gr. reglugerðarinnar. Tannfræðingi er skylt að halda sjúkraskýrslu um þá er leita til hans og aðrar skýrslur í samræmi við fyrirmæli landlæknis, sbr. 7. gr. reglugerðarinnar.
11. Matartæknar. Um matartækna gildir reglugerð um matartækna, nr. 27/1989. Matartæknar annast matreiðslu í heilbrigðisstofnunum undir stjórn og á ábyrgð matarfræðinga (nú næringarrekstrarfræðinga), sbr. 4. gr. reglugerðarinnar. Óheimilt er að ráða til matartæknistarfa aðra en þá sem hlotið hafa starfsréttindi, sbr. 5. gr. reglugerðarinnar.
12. Hnykkjar. Um hnykkja gildir reglugerð um menntun, réttindi og skyldur hnykkja, nr. 60/1990. Starfsvettvangur hnykkis er á heilbrigðisstofnunum og eigin stofum. Með hnykkingum er átt við meðferð á stoðkerfi líkamans. Ekki má hnykkir taka sjúkling til meðferðar án samráðs við lækni, sbr. 4. gr. reglugerðarinnar. Hnykki er heimilt að hafa sér til aðstoðar starfsfólk sem ávallt skal starfa á ábyrgð hans, sbr. 5. gr. reglugerðarinnar. Hnykki er skylt að halda dagbók um þá er leita til hans og aðrar skýrslur í samræmi við fyrirmæli landlæknis, sbr. 8. gr. reglugerðarinnar.
13. Tanntæknar. Tanntæknar hétu áður aðstoðarmenn tannlækna, sbr. reglugerð um menntun, réttindi og skyldur aðstoðarmanna tannlækna, nr. 258/1990. Þessi reglugerð var felld úr gildi með reglugerð um menntun, réttindi og skyldur tanntækna, nr. 259/1998. Með hinni nýju reglugerð er heiti stéttarinnar breytt í tanntækna. Starfsvettvangur tanntækna er á tannlæknastofum, heilbrigðisstofnunum, uppeldis- og fræðslustofnunum. Þeir annast móttöku sjúklinga, aðstoða tannlækna við klínísk störf, sjá um hreinsun áhalda og tækja, annast bókanir og bókhald vegna sjúklinga og tannverndarstörf. Þeir starfa samkvæmt fyrirmælum tannlækna og undir handleiðslu og á ábyrgð þeirra, sbr. 3. gr. reglugerðarinnar. Óheimilt er að ráða sem tanntækna aðra en þá sem hafa starfsleyfi, sbr. 4. gr. reglugerðarinnar.
14. Fótaaðgerðafræðingar. Um fótaaðgerðafræðinga gildir reglugerð um menntun, réttindi og skyldur fótaaðgerðafræðinga, nr. 184/1991. Í 4. gr. reglugerðarinnar kemur fram að starfsvettvangur fótaaðgerðafræðinga er á heilbrigðisstofnunum og á eigin stofum. Þar er fótaaðgerð skilgreind sem meðhöndlun fótameina, t.d. að fjarlægja harða húð og líkþorn, klippa og hreinsa neglur, þynna óeðlilegar þykkar neglur, sérsmíða spangir á niðurgrónar neglur og veita fræðslu og faglega ráðgjöf. Þar kemur og fram að fótaaðgerðafræðingar mega ekki án samráðs við lækni taka til meðferðar einstakling með augljós sjúkdómseinkenni, svo sem sýkingu í fótum, sykursýki, hjarta-, blóð- eða æðasjúkdóma. Fótaaðgerðafræðingi er heimilt að hafa starfsfólk sér til aðstoðar við annað en meðhöndlun fótameina og fræðslu og skal það ávallt starfa á ábyrgð hans, sbr. 5. gr. reglugerðarinnar. Fótaaðgerðafræðingum er skylt að halda dagbækur um þá sem leita til þeirra og aðrar skýrslur í samræmi við fyrirmæli landlæknis, sbr. 8. gr. reglugerðarinnar.
15. Náttúrufræðingar í heilbrigðisþjónustu. Um náttúrufræðinga í heilbrigðisþjónustu gildir reglugerð um menntun, réttindi og skyldur náttúrufræðinga, sem starfa á sérhæfðum rannsóknarstofum heilbrigðisstofnana, nr. 272/1991. Náttúrufræðingar í heilbrigðisþjónustu starfa á sérhæfðum rannsóknarstofum heilbrigðisstofnana. Þeir sjá um þjónustu- og/eða grunnrannsóknir á sínu sérsviði, annast úrvinnslu gagna, fræðslu og þjálfun, sbr. 4. gr. reglugerðarinnar. Óheimilt er að ráða í störf náttúrufræðinga í heilbrigðisþjónustu aðra en þá sem hafa starfsleyfi, sbr. 5. gr. reglugerðarinnar.
16. Næringarrekstrarfræðingar. Um næringarrekstrarfræðinga gildir nú reglugerð nr. 873/2006, um menntun, réttindi og skyldur næringarrekstrarfræðinga á heilbrigðisstofnunum, sem felldi úr gildi reglugerð um menntun réttindi og skyldur matarfræðinga, nr. 372/1993. Starfssvið næringarrekstrarfræðinga er stjórnun og rekstur stóreldhúsa á heilbrigðisstofnunum. Næringarrekstrarfræðingar veita næringarráðgjöf til hópa fólks, hanna matseðla út frá næringarráðleggingum og annast verklega kennslu nema í næringarrekstrarfræði og matartækni skv. 3. gr. reglugerðarinnar. Óheimilt er að ráða sem næringarrekstrarfræðing á heilbrigðisstofnanir aðra en þá sem hafa starfsleyfi samkvæmt reglugerð þessari, sbr. 4. gr. reglugerðarinnar.
17. Áfengis- og vímuefnaráðgjafar. Áfengis- og vímuefnaráðgjafar fengu löggildingu með reglugerð um menntun, réttindi og skyldur áfengis- og vímuefnaráðgjafa, nr. 974/2006. Áfengis- og vímuefnaráðgjafar stunda ráðgjöf á sviði áfengismála á ábyrgð lækna eða annarra háskólamenntaðra starfsmanna sem fagráð telur hæfa og eru í starfi sínu háðir eftirliti landlæknis, sbr. 5. gr. reglugerðarinnar.
18. Osteópatar. Osteópatar fengu löggildingu með reglugerð um menntun, réttindi og skyldur osteópata, nr. 229/2005. Starfsvettvangur osteópata er á heilbrigðisstofnunum og á eigin stofum. Starfssvið osteópata er meðhöndlun á stoðkerfi líkamans. Osteópati má ekki taka sjúkling til meðferðar án samráðs við lækni skv. 4. gr. reglugerðarinnar.
19. Stoðtækjafræðingar. Stoðtækjafræðingar fengu löggildingu með reglugerð um menntun, réttindi og skyldur stoðtækjafræðinga, nr. 460/2007. Starf stoðtækjafræðinga felst í smíði, ábyrgð á smíði, viðhaldi og eftirliti stoðtækja. Með stoðtæki er átt við „vélrænan og/eða tæknilegan búnað, sem er liður í meðferð sjúkdóma eða aðlögunar útlima og sem festir eru eða settir á eða við líkama og limi svo sem: 1) gervilim sem koma skal algjörlega eða að hluta í stað útlims, 2) spelkur eða umbúðir sem koma eiga í staðinn fyrir eða laga skerta getu líkamshluta“. Óheimilt er að ráða sem stoðtækjafræðing annan en þann sem hefur starfsleyfi skv. 2. gr. Stoðtækjafræðingar starfa á eigin ábyrgð en eru í starfi sínu háðir faglegu eftirliti landlæknis. Stoðtækjafræðingi er heimilt að ráða aðstoðarfólk, enda starfi það undir handleiðslu og á ábyrgð hans, sbr. 3. gr. reglugerðarinnar.
Um útgáfu starfsleyfa til ríkisborgara á Evrópska efnahagssvæðinu gildir reglugerð nr. 244/1994, um staðfestingu starfsleyfa nokkurra heilbrigðisstétta o.fl. samkvæmt ákvæðum EES-samningsins, með síðari breytingum.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Í 2. mgr. er gildissvið laganna afmarkað þannig að það taki til réttinda og skyldna löggiltra heilbrigðisstétta og annarra starfsmanna í heilbrigðisþjónustunni eftir því sem við á. Um skyldur framangreindra aðila er að öðru leyti vísað til laga um réttindi sjúklinga, laga um landlækni, laga um sjúkraskrár og annarra laga eftir því sem við á.
Um 2. gr.
Með heilbrigðisstarfsmanni er átt við einstakling sem starfar sem heilbrigðisstarfsmaður og hefur hlotið leyfi landlæknis til að nota starfsheiti löggiltrar heilbrigðisstéttar samkvæmt gildandi lögum og reglugerðum á hverjum tíma. Skilgreiningin er samhljóða skilgreiningu í 2. gr. laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997, og 4. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007.
Með löggiltri heilbrigðisstétt er átt við stétt sem fengið hefur löggildingu með sérlögum eða reglugerðum sem settar hafa verið með stoð í lögum nr. 24/1985, um starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta, eða samkvæmt ákvæðum laga þessara.
Með heilbrigðisstofnun er átt við stofnun, þ.m.t. fyrirtæki eða starfsstofu þar sem veitt er heilbrigðisþjónusta. Skilgreining á heilbrigðisstofnun er samhljóða skilgreiningu í 8. tölul. 4. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007.
Með heilbrigðisþjónustu er átt við hvers kyns heilsugæslu, lækningar, hjúkrun, almenna og sérhæfða sjúkrahúsþjónustu, sjúkraflutninga, hjálpartækjaþjónustu og þjónustu heilbrigðisstarfsmanna innan og utan heilbrigðisstofnana sem veitt er í því skyni að efla heilbrigði, fyrirbyggja, greina eða meðhöndla sjúkdóma eða endurhæfa sjúklinga. Skilgreiningin er samhljóða skilgreiningu sama hugtaks í 1. tölul. 4. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007.
Sjúklingur er skilgreindur sem notandi heilbrigðisþjónustu í samræmi við skilgreiningu á sjúklingi í 2. gr. laga nr. 74/1997, um réttindi sjúklinga. Með hugtakinu sjúklingur í lögum þessum og lögum um réttindi sjúklinga er því átt við einstakling, heilbrigðan eða sjúkan, þegar hann notar heilbrigðisþjónustu.
Hugtakið meðferð er skilgreint sem rannsókn, aðgerð eða önnur heilbrigðisþjónusta sem læknir eða annar heilbrigðisstarfsmaður veitir til að greina, lækna, endurhæfa, hjúkra eða annast sjúkling. Skilgreiningin er samhljóða skilgreiningu á sama hugtaki í 2. gr. laga um réttindi sjúklinga að öðru leyti en því að hér hefur hugtakið heilbrigðisþjónusta verið tekið upp í skilgreininguna í samræmi við ný lög um heilbrigðisþjónustu. Ber samkvæmt þessu að horfa til skilgreiningar á hugtakinu heilbrigðisþjónusta þegar hugtakið meðferð er túlkað samkvæmt lögunum.
Um 3. gr.
Þá er tannsmiðum bætt við upptalningu löggiltra heilbrigðisstétta. Tannsmíði er nú löggilt iðngrein og heyrir undir iðnaðarráðuneytið, sbr. lög um starfsréttindi tannsmiða nr. 109/2000. Í framhaldi af ósk Tannsmiðafélags Íslands og að höfðu samráði við iðnaðarráðuneytið, menntamálaráðuneytið, Háskóla Íslands, Tannlæknafélag Íslands o.fl. aðila var ákveðið að leggja til að tannsmiðir yrðu heilbrigðisstétt.
Starfsheitið „aðstoðarlyfjafræðingur“ er fellt brott úr upptalningu um tilgreiningu heilbrigðisstétta, enda er ekki lengur boðið upp á þetta nám hjá lyfjafræðideild Háskóla Íslands. Þeir sem fengið hafa starfsleyfi sem aðstoðarlyfjafræðingar halda rétti sínum til að nota starfsheitið og starfa sem slíkir, sbr. ákvæði til bráðabirgða.
Með brottfalli laga um starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta, nr. 24/1985, sbr. 32. gr. frumvarps þessa, fellur niður heimild ráðherra til að löggilda nýja heilbrigðisstétt með reglugerð. Ný heilbrigðisstétt verður þá einungis löggilt með lagabreytingu þar sem heiti hinnar nýju heilbrigðisstéttar yrði bætt við upptalningu 3. gr. á löggiltum heilbrigðisstéttum.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að ráðherra setji í reglugerð nánari ákvæði um nám og menntunarskilyrði hverrar stéttar er lögin taka til, að fengnum tillögum viðkomandi starfsstétta og umsögn landlæknis.
Um 4. gr.
Um 5. gr.
Þá skal í reglugerð kveðið á um skilyrði fyrir veitingu starfsleyfa til umsækjenda frá ríkjum sem ekki hafa samið við íslenska ríkið um gagnkvæma viðurkenningu prófskírteina. Gert er ráð fyrir að þar verði ákvæði um vottorð sem ber að leggja fram m.a. um nám og um fyrirhuguð störf hér á landi, svo sem frá væntanlegum vinnuveitendum, áður en umsókn er tekin til meðferðar. Þá er gert ráð fyrir heimild til að ákveða í reglugerð að umsækjandi um starfsleyfi sanni kunnáttu sína í greininni með því að gangast undir hæfnispróf. Jafnframt verði heimilt að setja með reglugerð skilyrði um íslenskukunnáttu og þekkingu á íslenskri heilbrigðislöggjöf, enda sé slík kunnátta nauðsynleg í starfinu, einkum vegna öryggis sjúklinga.
Í 4. mgr. er kveðið á um að starfsleyfi skuli ekki veitt ef skilyrði sviptingar starfsleyfis, samkvæmt lögum um landlækni, eru fyrir hendi.
Í 5. mgr. er gert ráð fyrir að heimilt sé að taka gjald af umsækjendum vegna kostnaðar við hæfnispróf.
Um 6. gr.
Í 2. mgr. er áréttað að landlækni sé heimilt að veita umsækjendum frá ríkjum sem ekki hafa samið við íslenska ríkið um gagnkvæma viðurkenningu prófskírteina starfsleyfi að uppfylltum skilyrðum laganna og reglugerða settra samkvæmt þeim.
Í 3. mgr. er undirstrikað að synjun landlæknis um veitingu starfsleyfis sé kæranleg til ráðherra samkvæmt stjórnsýslulögum.
Um 7. gr.
Um 8. gr.
Í reglugerð um sérfræðileyfi skal kveðið á um þau skilyrði sem uppfylla þarf til að mega kalla sig sérfræðing og í hvaða tilvikum skuli leitað umsagnar menntastofnunar eða annarra aðila. Hér er lagt til að miðað verði við að umsækjendur um sérfræðileyfi hafi lokið formlegu viðbótarnámi á viðkomandi sérfræðisviði. Mikilvægt er að reglugerðir um skilyrði fyrir veitingu sérfræðileyfa hafi að geyma skýrar reglur um námskröfur, kröfur til starfsþjálfunar og reynslu og aðrar kröfur sem taldar eru nauðsynlegar til þess að einstaklingur megi kallað sig sérfræðing. Einnig er mikilvægt að kveðið verði á um samanburð náms sem ekki hefur áður verið viðurkennt við þær námskröfur sem gerðar eru og náms sem viðurkennt hefur verið.
Í 2. mgr. er kveðið á um að gætt skuli skuldbindinga sem íslenska ríkið hefur tekið á sig samkvæmt alþjóðasamningum.
Um 9. gr.
Í 2. mgr. er hnykkt á því að synjun landlæknis um veitingu starfsleyfis sé kæranleg til ráðherra samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga.
Um 10. gr.
Einungis þeim sem fengið hefur leyfi til að nota starfsheiti löggiltrar heilbrigðisstéttar er heimilt nota starfsheiti stéttarinnar. Einungis þeim sem fengið hafa slíkt leyfi er heimilt að taka sjúklinga til meðferðar, vinna önnur störf sem heyra undir lögverndað starfssvið löggiltrar heilbrigðisstéttar, gefa sjúklingum læknisfræðilegar eða faglegar ráðleggingar og afhenda sjúklingum lyf sem einungis er heimilt að selja í lyfjabúðum, í samræmi við ákvæði lyfjalaga.
Um 11. gr.
Í 2. mgr. er gert ráð fyrir að landlæknir geti gefið út tímabundið starfsleyfi til heilbrigðisstarfsmanns með erlent nám eða próf sem er viðurkennt samkvæmt alþjóðasamningum, en uppfyllir ekki þær kröfur um nám sem gerðar eru hér á landi til að nota starfsheiti viðkomandi heilbrigðisstéttar og starfa sem slíkur hér á landi. Er þetta í samræmi við ákvæði tilskipunar 2005/36/EB frá 7. september 2005 um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi. Þar er heimilt að krefjast þess að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, svo sem að námstími sé a.m.k. einu ári styttri en hér á landi eða að námið sé að inntaki verulega frábrugðið inntaki náms hér á landi og að starfsgreinin sé lögvernduð, að umsækjandi um starfsleyfi ljúki allt að þriggja ára aðlögunartíma eða taki hæfnispróf. Til að umsækjandi geti starfað á aðlögunartíma þarf hann tímabundið starfsleyfi.
Í 3. mgr. er gert ráð fyrir því að landlæknir geti gefið út tímabundið starfsleyfi til heilbrigðisstarfsmanna með próf eða nám frá ríki utan hins Evrópska efnahagssvæðis eða frá Sviss þegar enginn samningur um gagnkvæma viðurkenningu prófskírteina gildir. Slík heimild greiðir fyrir því að heilbrigðisstarfsmenn frá fyrrgreindum ríkjum fái tækifæri til að starfa undir stjórn og eftirliti löggilts heilbrigðisstarfsmanns þyki ekki fært að gefa út varanlegt starfsleyfi, t.d. vegna þess að viðkomandi heilbrigðisstarfsmaður uppfyllir ekki að fullu kröfur um nám og hefur ekki nauðsynlega kunnáttu í íslensku. Að loknum slíkum reynslutíma gæti hann síðan sótt um varanlegt starfsleyfi að uppfylltum skilyrðum laganna og reglugerða settra samkvæmt þeim.
Í 4. mgr. er kveðið á um að handhafi tímabundins starfsleyfis skuli starfa undir stjórn og eftirliti heilbrigðisstarfsmanns sem hefur ótímabundið starfsleyfi í viðkomandi grein heilbrigðisfræða. Þetta ákvæði er byggt á 2. mgr. 4. gr. læknalaga.
Samkvæmt 5. mgr. er landlækni heimilt að vikja frá ákvæðum 4. mgr. ef sérstakar ástæður mæla með því. Hliðstætt ákvæði er nú að finna í 3. mgr. 4. gr. læknalaga.
Um 12. gr.
Um 13. gr.
Ákvæði 1. og 2. mgr. er efnislega í samræmi við ákvæði 1. mgr. 9. gr. læknalaga og sambærileg ákvæði sérlaga og reglugerða sem gilda um aðrar heilbrigðisstéttir. Þá er áréttað ákvæði 17. gr. laga um réttindi sjúklinga um að heilbrigðisstarfsmaður skuli koma fram við sjúkling af virðingu.
Samkvæmt 3. mgr. ber heilbrigðisstarfsmaður, eftir því sem við á, ábyrgð á greiningu og meðferð þeirra sjúklinga sem til hans leita. Lög um réttindi sjúklinga gilda að öðru leyti um upplýsingaskyldu heilbrigðisstarfsmanns gagnvart sjúklingi.
Í 4. mgr. er kveðið á um að heilbrigðisstarfsmaður skuli virða faglegar takmarkanir sínar og vísa sjúklingi til annars heilbrigðisstarfsmanns ef ætla má að hann sé faglega hæfari til að veita honum viðeigandi þjónustu. Sambærilegt ákvæði er ekki að finna í læknalögum eða lögum um aðrar heilbrigðisstéttir. Þótt telja verði að þessi skylda hvíli á heilbrigðisstéttum þykir ástæða til að árétta þessa skyldu í lögum. Heilbrigðisstarfsmaður sem virti ekki faglegar takmarkanir sínar eða léti undir höfuð leggjast að vísa sjúklingi til annars heilbrigðisstarfsmanns þegar það ætti við, gæti þurft að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga um landlækni.
Í 5. mgr. er heimild fyrir ráðherra til að kveða á um endurmenntun heilbrigðisstarfsmanna með reglugerð.
Um 14. gr.
Um 15. gr.
Í 2. mgr. felst það nýmæli að heilbrigðisstofnunum verði heimilt, að höfðu samráði við landlækni, að setja reglur um bann við notkun heilbrigðisstarfsmanna á áfengi eða öðrum vímuefnum tiltekinn tíma áður en vinna þeirra hefst.
Um 16. gr.
Sambærilegt ákvæði hefur um alllangt skeið verið í læknalögum, sbr. 7. gr., og ýmsum sérlögum og reglugerðum um löggiltar heilbrigðisstéttir. Þá eru ákvæði í gildandi lögum eða reglugerðum um að tannlæknar, iðjuþjálfar, sjúkraþjálfarar, talmeinafræðingar, hnykkjar og fótaaðgerðafræðingar geti notið aðstoðar annarra heilbrigðisstarfsmanna og/eða annarra starfsmanna við störf sín. Hér er ákvæðið víkkað og látið ná til allra heilbrigðisstarfsmanna sem eftir atvikum geta haft aðstoðarmann. Þá er gert ráð fyrir að auk heilbrigðisstarfsmanna geti aðrir starfsmenn svo og nemar verið heilbrigðisstarfsmanni til aðstoðar, enda hafi hann gengið úr skugga um að aðstoðarmaðurinn eða neminn sé fær um að vinna verkið undir hans eftirliti og stjórn.
Í 2. mgr. segir að ráðherra geti, að fenginni umsögn landlæknis, sett nánari ákvæði í reglugerð um framkvæmd þessa ákvæðis.
Um 17. gr.
Eins og fram kemur í frumvarpinu gildir þagnarskylda nema lög bjóði annað eða rökstudd ástæða sé til að rjúfa þagnarskyldu vegna brýnnar nauðsynjar. Dæmi um slík ákvæði er t.d. í IV. kafla barnaverndarlaga, nr. 80/2002. Þar er fjallað um tilkynningarskyldu þeirra sem hafa afskipti af börnum og er m.a. fjallað sérstaklega um tilkynningarskyldu lækna, ljósmæðra, hjúkrunarfræðinga og sálfræðinga. Jafnframt kemur fram í fyrrgreindum kafla að tilkynningarskylda samkvæmt ákvæðinu gangi framar ákvæðum laga um þagnarskyldu viðkomandi starfsstétta.
Loks er áréttað að um þagnarskyldu gildi jafnframt ákvæði laga um réttindi sjúklinga, laga um sjúkraskrár og annarra laga eftir því sem við á.
Um 18. gr.
Í 2. mgr. er kveðið á um að sömu aðilum sé skylt að veita ráðuneytinu nauðsynlegar upplýsingar við meðferð og úrlausn stjórnsýslumála. Hér er um að ræða nýmæli í lögum. Þótt telja verði að slík upplýsingaskylda sé fyrir hendi þykir ástæða til að árétta hana sérstaklega í lögum.
Í 3. mgr. er fjallað um vitnaskyldu heilbrigðisstarfsmanna og er ákvæðið samhljóða 4. mgr. 15. gr. læknalaga að öðru leyti en því að í stað orðsins læknir kemur heilbrigðisstarfsmaður. Ákvæði 4. mgr. 15. gr. læknalaga gildir einnig um aðra heilbrigðisstarfsmenn samkvæmt tilvísun í læknalög í sérlögum um heilbrigðisstarfsmenn og lögum um starfsréttindi heilbrigðisstétta. Hér er því ekki um efnisbreytingu að ræða.
Um 19. gr.
Ákvæði 2. mgr. fjallar um skyldu til að láta í té vottorð um sjúkling vegna viðskipta hans við hið opinbera og er efnislega samhljóða 12. gr. læknalaga.
Gert er ráð fyrir heimild ráðherra til útgáfu reglugerðar þar sem setja megi nánari fyrirmæli um útgáfu vottorða, faglegra yfirlýsinga og skýrslna. Slík reglugerðarheimild er nú í 2. mgr. 11. gr. læknalaga, sjá reglur nr. 586/1991.
Um 20. gr.
Um 21. gr.
Um 22. gr.
Um 23. gr.
Um 24. gr.
Um 25. gr.
Um 26. gr.
Um 27. gr.
Um 28. gr.
Um 29. gr.
Hér er gert ráð fyrir heimild ráðherra til að setja nánari ákvæði í reglugerð um skilyrði til að öðlast starfsleyfi á grundvelli alþjóðlegra samninga. Þar yrði m.a. kveðið á um skilyrði til þess að fá starfsleyfi á grundvelli náms í viðkomandi grein utan Íslands og um samanburð slíks náms við þær námskröfur sem gerðar eru hér. Við setningu þessara reglugerða skal gæta þeirra skuldbindinga sem Ísland hefur gengist undir vegna aðildar að Evrópska efnahagssvæðinu og Fríverslunarsamningi Evrópu eða með öðrum alþjóðasamningum. Í þeim reglugerðum skal jafnframt kveða á um málsmeðferð þar sem gerð er grein fyrir kæruleiðum, málshraða, rökstuðningi þegar um synjanir er að ræða og fleiru, eftir því sem við á.
Um 30. gr.
Um 31. gr.
Um 32. gr.
Um 33. gr.
Um ákvæði til bráðabirgða.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um heilbrigðisstarfsmenn.
Verði frumvarpið óbreytt að lögum verður ekki séð að það hafi í för með sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð.