Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 182. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 204  —  182. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um togararall.

Frá Einari K. Guðfinnssyni.



     1.      Liggja fyrir niðurstöður faghóps, sem skipaður var á haustdögum 2007, um endurskoðun á svokölluðu togararalli? Ef svo er, hverjar eru helstu tillögur hans?
     2.      Hvaða breytingar hafa verið gerðar á fyrirkomulagi togararallsins í framhaldi af endurskoðun þess – og með hliðsjón af sérstökum fjárveitingum sem ætlað var að auka gæði þessara rannsókna?