Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 205. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 229  —  205. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um veiðar á ref og mink.

Frá Einari K. Guðfinnssyni.



     1.      Hver hafa verið árleg fjárframlög ríkisins til veiða á ref og mink frá árinu 2005? Svar óskast sundurliðað eftir árum á núgildandi verðlagi.
     2.      Hve mikið hefur verið innheimt af virðisaukaskatti á sama tíma vegna veiða á ref og mink? Svar óskast sundurliðað eftir árum á núgildandi verðlagi.
     3.      Hver eru markmiðin með kostnaðarþátttöku ríkisins við veiðar á ref og mink og hvernig verður unnið að þeim?


Skriflegt svar óskast.