Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 249. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 285  —  249. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um skipan í stjórnir fyrirtækja á vegum NBI, Íslandsbanka, Nýja Kaupþings (Arion banka).

Frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur.



     1.      Hafa NBI, Íslandsbanki, Nýja Kaupþing (Arion banki) eða dótturfélög bankanna skipað fólk í stjórnir fyrirtækja og dótturfyrirtækja sem bankarnir hafa tekið yfir að hluta eða öllu leyti? Svar óskast sundurgreint eftir bönkum.
     2.      Í stjórnir hvaða fyrirtækja hafa fyrrgreindir bankar skipað stjórnarmenn? Hverjir hafa verið skipaðir og hver er skipting þeirra eftir kyni? Hverjir hafa verið skipaðir stjórnarformenn þessara fyrirtækja? Svar óskast sundurgreint eftir bönkum.
     3.      Hafa fyrrgreindir bankar sett sér reglur um hvernig skipað skuli í stjórnir og taka reglurnar, ef til eru, mið af jafnréttislögum? Svar óskast sundurgreint eftir bönkum.


Skriflegt svar óskast.