Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 265. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 303  —  265. mál.




Fyrirspurn



til dómsmála- og mannréttindaráðherra um rannsókn sérstaks saksóknara.

Frá Sigmundi Erni Rúnarssyni.



     1.      Hvað líður rannsókn sérstaks saksóknara á bankahruninu?
     2.      Hversu margir hafa fengið stöðu grunaðra við rannsóknina?
     3.      Til hvaða landa hefur rannsóknin náð?
     4.      Hvenær er áætlað að rannsókninni ljúki?