Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 348. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 621  —  348. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um laun hjá hinu opinbera og lágmarksframfærslu.

Frá Önnu Pálu Sverrisdóttur.



     1.      Telur ráðherra ásættanlegt að hið opinbera greiði í sumum tilvikum svo lág laun að Útlendingastofnun telur að þau dugi ekki til framfærslu?
     2.      Telur ráðherra að setja eigi opinber viðmið eða lög um lágmarksframfærslu?


Skriflegt svar óskast.