Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 372. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 669  —  372. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um niðurskurð í Norðvesturkjördæmi.

Frá Gunnari Braga Sveinssyni.



     1.      Hversu mikið er sjúkrahúsum og heilbrigðisstofnunum í Norðvesturkjördæmi gert að skera niður á árinu 2010, skipt eftir stofnunum?
     2.      Til hvaða aðgerða hafa stofnanirnar, hver fyrir sig, nú þegar gripið?
     3.      Hvaða aðgerðir eru fyrirhugaðar hjá þessum stofnunum, hverri fyrir sig?


Skriflegt svar óskast.