Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 433. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 754  —  433. mál.




Fyrirspurn



til dómsmála- og mannréttindaráðherra um plássleysi í fangelsum og fésektir.

Frá Vigdísi Hauksdóttur.



     1.      Hvað hafa margir einstaklingar sloppið við refsingu eða fésektir undanfarin tíu ár vegna plássleysis í fangelsum landsins?
     2.      Hvað hefur ríkið orðið af miklum tekjum vegna þessa á sama árabili?


Skriflegt svar óskast.