Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 476. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 820  —  476. mál.




Fyrirspurn



til forseta Alþingis um kærur um lögmæti alþingiskosninganna 2009.

Frá Margréti Tryggvadóttur.



     1.      Hefur Alþingi borist kæra um lögmæti alþingiskosninganna sem fram fóru 25. apríl 2009?
     2.      Ef svo er, hvenær barst sú kæra og hver fjallaði um hana?
     3.      Hefur kærendum verið svarað með formlegum hætti?
     4.      Ef svo er, hvenær var það gert, hver var niðurstaðan og á hverju byggðist hún?
     5.      Hvaða reglur gilda um málsmeðferð slíkra kærumála?


Skriflegt svar óskast.