Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 488. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 842  —  488. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um markmið með aflareglu.

Frá Einari K. Guðfinnssyni.



     1.      Hvert er markmiðið með þeirri aflareglu sem nú er í gildi varðandi nýtingu á þorskstofninum?
     2.      Hver er talin verða þróun viðmiðunarstofns og hrygningarstofns á komandi árum verði aflareglunni fylgt næstu fimm árin?