Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 497. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 872  —  497. mál.




Frumvarp til laga



um breytingar á lögum til að draga úr kennitöluflakki.

Flm.: Lilja Mósesdóttir, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir,


Þór Saari, Vigdís Hauksdóttir.


    

1. gr.

Breyting á lögum nr. 2/1995, um hlutafélög.


    Við 1. mgr. 150. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Heimilt er að synja félagi skráningar eða afskrá það með hliðsjón af viðskiptasögu stjórnenda og helstu eigenda ef þeir hafa ítrekað verið þátttakendur í rekstri sem farið hefur í þrot. Ráðherra er heimilt að setja nánari reglur um framkvæmd 2. málsl.

2. gr.
Breyting á lögum nr. 138/1994, um einkahlutafélög.

    Við 1. mgr. 124. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Heimilt er að synja félagi skráningar eða afskrá það með hliðsjón af viðskiptasögu stjórnenda og helstu eigenda ef þeir hafa ítrekað verið þátttakendur í rekstri sem farið hefur í þrot. Ráðherra er heimilt að setja nánari reglur um framkvæmd 2. málsl.

3. gr.
Breyting á lögum nr. 21/1991, um gjaldþrotaskipti o.fl.

    Við 1. mgr. 124. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Ef þrotamaður er félag skal óheimilt að ráðstafa eignum og réttindum búsins varanlega til stjórnenda og helstu eigenda félagsins eða aðila þeim tengdum ef þeir hafa ítrekað verið þátttakendur í rekstri sem farið hefur í þrot.

4. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Tilgangur frumvarpsins er sá að slá varnagla við því að helstu eigendur og stjórnendur geti í skjóli takmarkaðrar ábyrgðar orðið uppvísir að því að keyra fyrirtæki sín í þrot ítrekað.
    Það er meginregla félagaréttar í tilviki einkahlutafélaga og hlutafélaga að enginn félagsmanna beri persónulega ábyrgð á heildarskuldbindingum félagsins. Að baki reglunni búa sanngirnisrök og að einstaklingar eigi að hafa tækifæri til að hefja atvinnurekstur án þess að bera persónulega ábyrgð á skuldbindingum sem af því leiðir. Undanfarin ár hafa margir yfirfært rekstur yfir á hlutafélagaform sem m.a. má þakka tilkomu einkahlutafélaga, skattalegu hagræði og tískustraumum.
    Skiptar skoðanir eru uppi um ágæti þessarar þróunar en framan af hefur verið talið að hún leiddi til aukinnar verðmætasköpunar. Efasemdir um þetta hafa þó ágerst eftir bankahrunið haustið 2008. Nefna mætti í því sambandi áhyggjur af því að ráðandi eigendur og stjórnendur fyrirtækja misnoti aðstöðu sína innan félaganna eða haldi áfram þátttöku í atvinnulífinu skömmu eftir gjaldþrot þeirra eins og ekkert hafi í skorist, t.d. með þeirri aðferð að flytja eignir hins gjaldþrota félags yfir í nýtt félag en skilja skuldirnar eftir.
    Sannanlega geta gjaldþrot fyrirtækja átt sér eðlilegar skýringar og þegar svo ber undir verðskulda stjórnendur og eigendur þeirra ný tækifæri til rekstrar. Frumvarpið á ekki að koma í veg fyrir þetta. Benda má þó á að í 3. mgr. 148. gr. laga um hlutafélög og 3. mgr. 122. gr. laga um einkahlutafélög kemur fram að í tilkynningu um stofnun hlutafélags og einkahlutafélags skulu sönnur færðar á tiltekin hæfisskilyrði stofnenda og stjórnenda félags.
    Heimild hlutafélagaskrár samkvæmt frumvarpinu felur í sér að stofnunin mun geta synjað félagi skráningu eða afskráð það ef viðskiptasaga stjórnenda þess eða helstu eigenda gefur tilefni til. Viðskiptaráðherra er falið að útfæra nánar skilyrði þessa í reglugerð. Má í því sambandi hafa til hliðsjónar viðmið sem tilgreind eru í 47. gr. laga um opinber innkaup, nr. 84/2007, og koma til skoðunar þegar metið er hvort útiloka eigi fyrirtæki frá opinberum samningi. Með hliðsjón af eðli viðfangsefnisins er þó torvelt að setja reglur um þetta efni nema að fenginni reynslu hlutafélagaskrár. Ákvarðanir hennar þurfa að vera vel rökstuddar, sbr. 108. og 150. gr. hlutafélagalaga og 83. og 124. gr. einkahlutafélagalaga auk þess að taka mið af 75. gr. stjórnarskrárinnar, nr. 33/1944, og stjórnsýslulögum nr. 37/1993.
    Loks er í frumvarpinu lagt til að við skipti á þrotabúum félaga verði skiptastjóra ekki heimilt að ráðstafa eignum og réttindum búsins varanlega til stjórnenda og helstu eigenda eða aðila þeim tengdum við þær aðstæður sem að framan greinir.