Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 588. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 979  —  588. mál.




Fyrirspurn



til félags- og tryggingamálaráðherra um sumarlokanir á heimilum og stofnunum fyrir aldraða, fatlaða eða sjúka.

Frá Ragnheiði E. Árnadóttur.



     1.      Hversu mörgum heimilum, stofnunum eða deildum innan þeirra fyrir aldraða, fatlaða eða sjúka, sem heyra undir ráðuneytið, er fyrirhugað að loka tímabundið í sumar vegna sumarleyfa?
     2.      Hversu marga íbúa, þjónustuþega eða sjúklinga munu sumarlokanirnar snerta?
     3.      Hvaða úrræði standa viðkomandi einstaklingum og fjölskyldum þeirra til boða vegna þessa?


Skriflegt svar óskast.