Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 639. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1130  —  639. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um Hagavatnsvirkjun.

Frá Sigurði Inga Jóhannssyni.



     1.      Hafa verið gefin út virkjunarleyfi vegna Hagavatnsvirkjunar og ef svo er, til hverra?
     2.      Er unnið að því á vegum ráðuneytisins að gera Hagavatnsvirkjun mögulega?
     3.      Hvaða skilyrði er að mati ráðherra eftir að uppfylla áður en til virkjunar getur komið?


Skriflegt svar óskast.