145. FUNDUR
miðvikudaginn 8. júní,
kl. 7.50 síðdegis.
Almennar stjórnmálaumræður.
Umræðurnar voru sendar út í útvarpi og sjónvarpi. Umræðurnar fóru þannig fram að hver þingflokkur fékk 22 mínútur til umráða sem skiptust í þrjár umferðir, 10 mínútur í fyrstu umferð, 6 mínútur í annarri og 6 mínútur í síðustu umferð. Þingmaður utan flokka talaði síðastur í fyrstu umferð og hafði 6 mínútur.
Röð flokkanna var þessi í öllum umferðum: Sjálfstæðisflokkur, Samfylkingin, Framsóknarflokkur, Vinstri hreyfingin -- grænt framboð og Hreyfingin.
Ræðumenn flokkanna voru fyrir Sjálfstæðisflokk í fyrstu umferð Bjarni Benediktsson, 2. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri Ólöf Nordal, 2. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, en í þeirri þriðju Tryggvi Þór Herbertsson, 9. þm. Norðausturkjördæmis.
Ræðumenn Samfylkingarinnar voru Þórunn Sveinbjarnardóttir, 7. þm. Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, Helgi Hjörvar, 4. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í annarri, en í þriðju umferð Jónína Rós Guðmundsdóttir, 10. þm. Norðausturkjördæmis.
Fyrir Framsóknarflokk töluðu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 8. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, Gunnar Bragi Sveinsson, 4. þm. Norðvesturkjördæmis, í annarri, en í þriðju umferð Eygló Harðardóttir, 7. þm. Suðurkjördæmis.
Fyrir Vinstri hreyfinguna grænt framboð tala í fyrstu umferð Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, í annarri Auður Lilja Erlingsdóttir, 2. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, en Álfheiður Ingadóttir, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í þriðju umferð.
Fyrir Hreyfinguna tala í fyrstu umferð Margrét Tryggvadóttir, 10. þm. Suðurkjördæmis, í annarri umferð talar Þór Saari, 9. þm. Suðvesturkjördæmis, og Birgitta Jónsdóttir, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í þeirri þriðju.
Ræðumaður utan flokka Lilja Mósesdóttir, 6. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, talar í fyrstu umferð.
[21:51]
Fundi slitið kl. 21:51.
---------------