Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 3. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 3  —  3. mál.




Fyrirspurn



til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um öryggi Hvalfjarðarganga.

Frá Eygló Harðardóttur.



     1.      Til hvaða aðgerða hefur verið gripið til að bæta öryggi Hvalfjarðarganga, en göngin fengu nýlega lægstu einkunn í úttekt á öryggi nokkurra evrópskra jarðganga?
     2.      Hefur komið til greina að stjórna hraða og flæði bíla í gegnum göngin í samræmi við öryggisreglur Mont Blanc ganganna?