Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 117. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 126  —  117. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um fjölda hjúkrunar- og dvalarrýma fyrir aldraða.

Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.



     1.      Hvað verða mörg hjúkrunar- og dvalarrými fyrir aldraða lögð niður árin 2010 og 2011?
     2.      Hversu mörg rúm í einbýlum munu standa auð eftir fækkunina?
     3.      Hversu mörgum starfsmönnum hefur verið og verður sagt upp vegna fækkunar hjúkrunar- og dvalarrýma?
     4.      Hvað er gert ráð fyrir mikilli fjölgun rýma samkvæmt áætlun ríkisstjórnarinnar um uppbyggingu hjúkrunarrýma á árunum 2010–2016, sundurliðað eftir árum og hjúkrunarheimilum?


Skriflegt svar óskast.