Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 167. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 183  —  167. mál.




Fyrirspurn



til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um vegagerð á áhrifasvæði eldgosanna á Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli.

Frá Arndísi Soffíu Sigurðardóttur.



     1.      Hversu miklum fjármunum hefur ríkið þegar varið til vegagerðar vegna afleiðinga eldgosanna á Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli?
     2.      Hvaða vegi er áformað að byggja upp eða lagfæra vegna beinna áhrifa eldgosanna og tengdra afleiðinga, svo sem aukinnar umferðar?
     3.      Hver er áætlaður heildarkostnaður við þau verkefni?
     4.      Hvenær er áformað að verkefnunum ljúki?


Skriflegt svar óskast.