Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 224. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 255 — 224. mál.
til efnahags- og viðskiptaráðherra um skuldaúrræði fyrir einstaklinga.
1. Hve margir einstaklingar hafa fengið lán sín fryst?
2. Hve margir einstaklingar hafa fengið leiðréttingu á höfuðstól lána sinna í bönkum og sparisjóðum og hver er heildarfjárhæð þeirrar skuldalækkunar?
3. Hve margir einstaklingar hafa fengið afskrifaðar skuldir í bönkum og sparisjóðum eftir svo kallaðri 110% leið og hver er heildarfjárhæð þeirra afskrifta?
4. Hve margir einstaklingar hafa fengið sértæka skuldaaðlögun?
Svar óskast sundurliðað eftir stóru viðskiptabönkunum þremur og sparisjóðum í heild.
Skriflegt svar óskast.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 255 — 224. mál.
Fyrirspurn
til efnahags- og viðskiptaráðherra um skuldaúrræði fyrir einstaklinga.
Frá Einari K. Guðfinnssyni.