Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 242. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 273  —  242. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um áhrif fækkunar ríkisstarfsmanna á fjárhag sveitarfélaga.

Frá Sigmundi Erni Rúnarssyni.



     1.      Hvaða áhrif hefur fækkun ríkisstarfsmanna haft á fjárhag sveitarfélaga og hver munu áhrifin verða á næstu árum?
     2.      Hvar gætir þessara áhrifa mest og hvar gætir þeirra minnst?
     3.      Hvar hefur ríkisstarfsmönnum fjölgað mest á síðustu tíu árum og hvar hefur þeim fækkað mest á samt tíma?