Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 250. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 281  —  250. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um sölu Landsbankans á fyrirtækjum.

Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.



    Á hvaða verði og kjörum selur Landsbankinn EJS, HugAx, Húsasmiðjuna, Icelandic Group, Plastprent, Skýrr, Teymi og Vodafone? Hvernig skiptist kaupverðið, hvert verður virði hlutafjár og skulda og hvaða skuldir verða yfirteknar? Svar óskast sundurliðað eftir fyrirtækjum.


Skriflegt svar óskast.